Fögnun samstöðu verkafólks
Á félagsfundi Drífanda stéttarfélags í dag, var samþykkti eftirfarandi ályktun: Félagsfundur Drífanda stéttarfélags fagnar þeirri samstöðu sem hefur myndast í þjóðfélaginu um þær raunsæu launakröfur sem settar hafa verið fram af Starfsgreinasambandinu.
Verkafólk um land allt hefur sýnt frábæra samstöðu við myndun kröfugerðar en ljóst er að mikil átök eru framundan. Allar hagtölur sýna sláandi misskiptingu í samfélaginu hvort sem litið er til launa eða eigna.
Aðgengi að heilbrigðisþjónustu, endurhæfingu, menntun og góðum samgöngum er í vaxandi mæli háð tekjum einstaklinga. Verkafólk á núverandi töxtum getur ekki tekið sómasamlegan þátt í samfélaginu meðan stefna um vaxandi misskiptingu er við lýði.
Verkafólk í Vestmannaeyjum sendir baráttukveðjur til félaga sinna um allt land og heitir samstöðu í kjarabaráttunni sem framundan er.

Nýjustu fréttir

Páll aftur á Sprengisandi – Beint í djúpu laugina
Framtíðarsýn um réttlæti og stöðugleika
Fótboltamaðurinn Bjarki Björn Gunnarsson er íþróttamaður mánaðarins
Veðurblíðan í Eyjum í sumar á sér fáar hliðstæður
Fjölbreytt námskeið hjá Visku í haust
Myndlistargyðjan var alltaf í fyrsta sæti
Vestmannaeyjar Open 2026 í pílukasti fór fram um helgina
ÍBV tapaði á heimavelli gegn ÍA
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.