Forsala á Magnús og Jóhann hafin í Eymundsson
Sala á tónleika Magnúsar og Jóhanns, sem fram fara á Háaloftinu miðvikudaginn 16.apríl, miðvikudaginn fyrir skírdag, er hafin í Eymundsson. Dúettinn þarf vart að kynna fyrir nokkrum manni sem alið hefur manninn á Íslandi undanfarna áratugi. Magnús og Jóhann eru frábærir lagasmiðir og fyrir utan allt það sem þeir hafa gert saman, hafa þeir félagar samið margar af bestu dægurlagaperlum íslenskrar popptónlistar fyrir aðra. Ferill félaganna spannar nokkra áratugi og því auðvelt fyrir þá að setja upp eitt skotheldasta tónleikaprógram sem sögur fara af. �?eir hlakka mikið til að kíkja á Háaloftið og vonast að sjálfsögðu til að sjá Háaloftið stútfullt.
Verð miða er 2.500,- Hægt er að borða á undan og miði á tónleika og mat er kr. 6.000,-
Húsið opnar fyrir matargesti kl. 19.30 en fyrir aðra tónleikagesti kl. 21.00.
Matseðill:
Lambaspjót með brendu blómkálsmauki, djúpsteiktum sætum kartöflum, steikargrænmeti og myntu-raita sósu
Við ítrekum: Forsala miða er í Eymundsson……. og síðast seldist upp!!!

Nýjustu fréttir

Vikan í Eyjum: Herjólfur, framkvæmdir við höfnina og fjárhagsáætlun bæjarins
Lúðrasveitin í landsliðsklassa – Kraftur, gleði og glæsilegur samhljómur
Gera ráð fyrir 610 milljóna afgangi á næsta ári
Hausttónleikar Lúðrasveitar Vestmannaeyja í myndum
Bæjarstjórn gagnrýnir boðaðan niðurskurð til Herjólfs
ÍBV vann öruggan sigur á Stjörnunni – Sandra fór á kostum
Heimir Hallgrímsson heldur varnarnámskeið í Eyjum í desember
Vestmannaeyjabær leggur sex milljónir í hlutafjáraukningu í Eyjagöngum
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.