Forsala til Eyjamanna hefst í dag kl. 16
Undanfarin ár höfum við Eyjamenn og okkar hollustu vinir, komið saman í Eldborgarsal Hörpu í sannkallaðri tónlistarveislu og að auki notið þess að hitta gamla ættingja og vini, fólk sem við höfum jafnvel ekki séð í áraraðir. Í hvert sinn hefur verið uppselt og gestir farið alsælir heim.
Enn er Eyjamönnum boðið til veislu í Hörpu.
Laugardagskvöldið 24. janúar næstkomandi bjóðum við til enn einnar veislunnar. Í þetta skiptið er reyndar ekkert eitt þema, við einfaldlega bjóðum gestum upp á allar bestu dægurlagaperlurnar sem við kennum við Eyjar.
Flytjendurnir eru heldur ekki af verri endanum; Björgvin Halldórsson, Páll �?skar, Sigríður Beinteinstóttir, Bjartmar Guðlaugsson, Sverrir Bergmann, Hreimur �?rn, Kristján Gísla, Silja Elsabet, Sunna Guðlaugs, Alexander Jarl og �?skar Einarsson ásamt meðlimum úr Gospelkór Reykjavíkur og söngkonunum �?lmu Rut og Ernu Hrönn.
Hljómsveitina, sem �?orvaldur Bjarni �?orvaldsson stýrir, skipa þeir Eiður Arnarsson á bassa, Birgir Nielsen á trommur, Jón Elfar Hafsteinsson á gítar, Kjartan Valdemarsson á hljómborð og harmonikku, Sigurður Flosason á saxafón, flautur og slagverk og Kjartan Hákonarson á trompet og �?orvaldur Bjarni sjálfur á gítar.
Ekki má heldur gleyma tveimur rúsínum í pylsuendanum, þ.e. Lúðrasveit Vestmannaeyja undir stjórn Jarls Sigurgeirssonar og hljómsveitinni Logum, sem mun án efa ylja mörgum gömlum Eyjamönnum um hjartaræturnar.
�?að er því óhætt að lofa ríkulegri Eyjastemningu í Eldborgarsal Hörpu meðan á tónleikunum stendur, en ekki síður áður en þeir hefjast, í löngu hléi og á eftir, þegar þeir sem enn hafa úthald halda á veitingastaðinn SPOT og skemmta sér þar í �?jóðhátíðargírnum fram á rauða nótt.
Líklega er þetta eitt stærsta árganga- og ættarmót landsins og hefur verið mikil uppspretta dýrmætra upprifjana á minningarbrotum tengdum Eyjunum. Vonandi verður svo áfram því það er svo mikilvægt að halda vel utan um söguna okkar. Samfélagssagan er ekki síst fólgin í fallegum sögubrotum úr lífi fólksins sem annaðhvort býr eða bjó í Eyjum og á þaðan dýrmætar minningar.
Miðasala hefst föstudaginn 31.október á midi.is, harpa.is og í miðasölu Hörpu í síma 528-5050.
Eyjamönnum er boðið að nýta sér sérstaka forsölu, sem hefst i dag kl. 16 á harpa.is og midi.is.
Allar frekari upplýsingar veitir Bjarni �?lafur í síma 896-6818 eða daddi@hollin.is.
Einnig finnur þú viðburðinn á Facebook, Lífið er yndislegt – �?g veit þú kemur.
Fréttatilkynning

Nýjustu fréttir

Vilja vernda einstakt lífríki sunnan Íslands
Viðreisn vill raunverulegar forvarnir gegn nikótínneyslu ungmenna
Brottför seinni ferðar flýtt vegna versnandi veðurs
Níu útgefendur fá styrki til fjölmiðlunar í héraði
Óveðrið í myndum
Uppvakningafaraldur skellur á Íslandi í nýju hlaðvarpi úr Eyjum
Þakplata farin að losna – hviður náðu 51 m/s á Stórhöfða
Skólahaldi seinkað til klukkan 9 vegna veðurs
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.