Frábær sigur norðan heiða
Meiðslum hrjáð lið Íslandsmeistara ÍBV í karlahandboltanum vann í dag frækinn sigur á Akureyri norðan heiða, 32:33. Eyjamenn hafa ekki farið vel af stað í deildinni, gert eitt jafntefli en tapað tveimur leikjum, þar af öðrum á heimavelli. Auk þess hafa leikmenn lent á meiðslalistanum undanfarið en Sindri Haraldsson hefur lítið sem ekkert leikið með liðinu, Andri Heimir Friðriksson er að komast af stað aftur eftir ökklameiðsli, Grétar �?ór Eyþórsson lék ekki með í dag, ekki frekar en Agnar Smári Jónsson og nú síðast var það línumaðurinn Guðni Ingvarsson sem heltist úr lestinni vegna axlarmeiðsla. �?að kom því í hlut fyrirliða ÍBV, Eyfirðingsins Magnúsar Stefánssonar frá Fagraskógi að spila á línunni í dag í fjarveru þeirra Sindra og Guðna. �?eir Svavar Kári Grétarsson og Hákon Daði Styrmisson fengu því tækifæri með ÍBV liðinu í dag og óhætt að segja að þeir hafi nýtt tækifærið vel en samtals skoruðu þeir 10 mörk.
�?að leit þó ekki út fyrir að ÍBV myndi fara með sigur af hólmi enda komust Akureyringar í 10:6 þegar fyrri hálfleikur var hálfnaður en ÍBV hafði komist í 1:3 í byrjun leiks. Markvarslan var örlítið meiri en engin framan af en markverðir ÍBV höfðu aðeins varið eitt skot þegar 48 mínútur voru liðnar af leiknum, sem er auðvitað með ólíkindum. En þá hrökk Kolbeinn Arnarson í gang í markinu, varði sex skot það sem eftir lifði leiks, m.a. skot í síðustu sókn Akureyringa og tryggði ÍBV um leið sigurinn.
Mörk ÍBV: Theodór Sigurbjörnsson 8/1, Einar Sverrisson 5, Svavar Kári Grétarsson 5, Hákon Daði Styrmisson 5, Andri Heimir Friðriksson 5, Magnús Stefánsson 2, Dagur Arnarsson 2.
Varin skot: Kolbeinn Arnarsson 7.

Nýjustu fréttir

Andri og Elís Þór áfram í milliriðil með u-20
Eyjamenn töpuðu gegn KR á Meistaravöllum
Sóley og Örlygur Helgi eru klúbbmeistarar GV 2026
Rannsóknum fyrir Eyjagöng miðar vel áfram
Þóra Guðný og Sveinn flutt í nýja húsið
ÍBV mætir KR á Meistaravöllum í kvöld
Minnisvarði um Þór gæti fengið nýjan stað
Áfram Noregur í kvöld – Heimisáhrifin virka
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.