Frábær skemmtun í síðasta leik
ÍBV og Breiðablik skildu jöfn 2:2 í opnum og skemmtilegum leik í dag í lokaumferð Pepsídeildar kvenna. Leikurinn fór fram á Hásteinsvelli og var bráðfjörugur þar sem boltinn gekk teiga á milli og fjölmörg færi litu dagsins ljós. Vesna Elísa Smiljkovic kom ÍBV yfir á 28. mínútu eftir þunga sókn ÍBV en Vesna skoraði úr þröngu færi vinstra megin við markteiginn. Blikar jöfnuðu svo með glæsilegu marki beint úr aukaspyrnu aðeins fimm mínútum síðar og þar var að verki Eyjakonan Fanndís Friðriksdóttir, sem reyndis Eyjaliðinu erfið í dag eins og svo oft áður. Staðan í hálfleik var jöfn 1:1. Síðari hálfleikur var ekki minni skemmtun en sá fyrri. Rakel Hönnudóttir kom Blikum yfir með föstu og hnitmiðuðu skoti á 59. mínútu. Sigríður Lára Garðarsdóttir jafnaði svo metin með sannkölluðum þrumufleyg af löngu færi, glæsilegt mark hjá miðjumanninum sterka. Bæði lið sóttu til sigurs það sem eftir lifði leiks og bæði fengu úrvalsfæri til að skora sigurmarkið en fleiri urðu mörkin ekki.
ÍBV endar því tímabilið í 6. sæti deildarinnar og hefur ekki endað neðar síðan liðið kom upp í úrvalsdeild sumarið 2011. Reyndar hefur ÍBV ekki endað neðar en í 3. sæti síðan þá og árangurinn í ár ekki svo slakur þegar allt kemur til alls. �?annig var ÍBV með í baráttunni um 3. sætið allt fram í lokaumferðina og er ekki nema tveimur stigum á eftir Selfoss, sem endaði í 4. sæti. Eins og áður hefur komið fram stígur þjálfari liðsins síðustu átta ár, Jón �?lafur Daníelsson til hliðar og aðstoðarþjálfari hans, Ian Jeffs tekur við. Jón sleppir þó ekki alveg tökunum af liðinu því hann verður aðstoðarþjálfari hjá Jeffsy. Viðtal við Jón �?la fylgir fréttinni.

Nýjustu fréttir

Lundasumarið 2026
Hvað ef eitt lítið skref gæti haft stór áhrif?
Ágreiningur um framtíðarskipulag íþróttasvæðisins við Hástein
Bergey og Vestmannaey með fullfermi í Neskaupstað
Hefja þarf undirbúning að nýsmíði sem allra fyrst
„Ég lít sáttur til baka“
Erfitt ár hjá Herjólfi – Reksturinn undir áætlun 
Meiri halli fyrirséður hjá Náttúrustofu Suðurlands
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.