Frábærir tónleikar Todmobile á Háaloftinu
Poppsveitin Todmobile fagnar um þessar mundir 25 ára afmæli sveitarinnar en sveitin kom fram á frábærum tónleikum á Háaloftinu í gærkvöldi. Húsfyllir var á tónleikunum og sveitin lék á alls oddi og tók öll sín vinsælustu lög, ásamt nýmeti sem gefið verður út á næstunni. �?etta voru fyrstu tónleikarnir í afmælistónleikaferð Todmobile um landið og ekki hægt að segja annað en að ferðin fari vel af stað. Líklega hefur Todmobile hvergi annarsstaðar komið jafn oft fram og í Vestmannaeyjum, ef undan er skilið höfuðborgarsvæðið og Akureyri.
Með fréttinni fylgir myndband frá tónleikunum þar sem sveitin flytur eitt af sínum vinsælustu lögum og eitt af vinsælustu popplögum íslenskrar tónlistarsögu, Brúðkaupslagið.

Nýjustu fréttir

Gera ráð fyrir 610 milljóna afgangi á næsta ári
Hausttónleikar Lúðrasveitar Vestmannaeyja í myndum
Bæjarstjórn gagnrýnir boðaðan niðurskurð til Herjólfs
ÍBV vann öruggan sigur á Stjörnunni – Sandra fór á kostum
Heimir Hallgrímsson heldur varnarnámskeið í Eyjum í desember
Vestmannaeyjabær leggur sex milljónir í hlutafjáraukningu í Eyjagöngum
Skálað og skrafað í Miðstöðinni – myndir
Eyjakonur vilja halda í við topplið Hauka
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.