Framúrskarandi fyrirtæki í Eyjum

Í 15 ár hefur Creditinfo unnið greiningu á rekstri íslenskra fyrirtækja og veitt Framúrskarandi fyrirtækjum viðurkenningu fyrir árangurinn. Markviss undirbúningur og þrotlaus vinna liggur að baki framúrskarandi árangri. Vottunin er mikilvægur þáttur í markaðssókn þeirra sem vilja efla traust viðskiptavina og samstarfsaðila. Það er því eftirsóknarvert að skara fram úr.

Þetta kemur fram á heimasíðu Creditinfo þar sem skilyrði fyrir veitingunni. Meðal þeirra eru lánshæfi, ársreikningi sé skilað á réttum tíma og að fyrirtækið sé virkt samkvæmt skilgreiningu Creditinfo. Einnig eru skilyrði um rekstrartekjur og rekstrarhagnað,  jákvæða niðurstöðu reikningsárin 2021 til 2023 og eiginfjárhlutfall skal  a.m.k. vera 20% reikningsárin 2021 til 2023 og að eignir nái áveðnu lágmarki sömu ár.

Þau fyrirtæki sem hlutu viðurkenninguna í Eyjum í ár:

Vinnslustöðin hf., Ísfélag hf., VSV Seafood Iceland ehf., Bergur-Huginn ehf., Bergur ehf., Ós ehf., Skipalyftan ehf., Miðstöðin Vestmannaeyjum ehf., Karl Kristmanns umboðs- og heildverslun ehf., Bylgja VE 75 ehf., Faxi ehf., Frár ehf., HS Vélaverk ehf., Grímur kokkur ehf., S.B. Heilsa ehf., Narfi ehf., Einsi Kaldi Veisluþjónusta ehf., Kvika ehf.útgerð og Fiskmarkaður Vestmannaeyja hf.

Ísfélagið

-Lítil starfsmannavelta eykur stöðugleika 

„Félagið er stolt af því að vera Framúrskarandi fyrirtæki. Ástæða þess er fyrst og fremst öflugir og reynslumiklir stjórnendur hjá félaginu. Lítil starfsmannavelta er hjá félaginu og eykur það stöðugleika og ákvarðanatöku til framtíðar. Félagið sinnir nýsköpun og rannsóknum, sýnir samfélagsábyrgð og leitast við að vera eflandi afl í nærsamfélögum sínum,“ sagði Guðmundur Jóhann Árnason, verkefnastjóri mannauðs- samfélags- og umhverfismála hjá Ísfélagi hf.

Er þetta í áttunda skiptið sem félagið fær viðurkenninguna. „Þetta sýnir metnað í rekstri félagsins og að það hefur á að skipa öflugu starfsfólki. Fjöldi starfsmanna telur um 350 manns í landi og á sjó og á því byggjum við starfsemina.“

Miðstöðin

-Viðurkenning sem heldur okkur á tánum 

„Við erum mjög stolt af þessari viðurkenningu, að vera Framúrskarandi fyrirtæki og það áttunda árið í röð,“ segir Marinó Sigursteinsson, framkvæmdastjóri og aðaleigandi Miðstöðvarinnar sem er eitt nítján fyrirtækja í Vestmannaeyjum sem hlaut viðurkenninguna í ár. „Annað í þessu er að þú kemst ekki inn nema að standast skilyrðin í þrjú ár. Ef við dettum út tekur það okkur þrjú ár að komast inn aftur.“

Creditinfo veitir viðurkenninguna, Framúrskarandi fyrirtæki með ákveðnum kröfum og Keldan og Viðskiptablaðið veita viðurkenningu fyrir hagnað. „Við höfum fengið viðurkenningar frá þeim báðum öll átta árin. Þetta er ekki bara stoltið, viðurkenningarnar halda okkur á tánum og að gera betur á hverju ári.  Þess vegna er ég mjög montinn og í skýjunum með þessar viðurkenningar. Þær sýna að við erum á réttri braut og handverkið er á uppleið hér í Vestmannaeyjum. Í dag vinna 23 hjá Miðstöðinni og níu eru að læra pípulagnir í Framhaldsskólanum sem er ekki bara styrkur fyrir okkur heldur bæjarfélagið allt. Við erum með frábært starfsfólk og það ber að þakka. Án þeirra næðum við ekki þessum árangri,“ segir Marinó sem er bjartsýnn á framtíðina.

„Það styttist í að ég dragi mig í hlé en það eru öflugir menn sem taka við. Verkefnin eru næg og veltan eykst með hverju árinu þannig að ég er sáttur þegar ég lít til baka.“

Skipalyftan

-Lykillinn er gott starfsfólk og traustir viðskiptavinir

Skipalyftan  er eitt fyrirtækja í Vestmannaeyjum sem tók við viðurkenningu frá CreditInfo fyrir að vera Framúrskrandi fyrirtæki. „Þetta er 11. árið í röð sem fyrirtækið hlýtur þessa viðurkenningu og erum við mjög þakklát fyrir það,“ segir Stefán Örn Jónsson, framkvæmdatjóri Skipalyftunnar. „Árangurinn má fyrst og fremst þakka góðu starfsfólki og ekki síður traustum og góðum viðskiptavinum í Vestmannaeyjum og víðar.“  Vinnslustöðin hefur í áraraðir hlotið viðurkenningu fyrir að vera framúrskarandi fyrirtæki hjá Creditinfo. Það er ánægjuleg viðurkenning fyrir stjórnendur og starfsfólk fyrirtækisins. Vinnslustöðin hefur verið ört stækkandi félag sem hefur undanfarin ár leitast við að styrkja stöðu sína á afurðamörkuðum með eigin söluneti, sem vel hefur reynst. Það hefur styrkt stöðu þess sem ein af undirstöðum atvinnurekstrar í Eyjum. Fjöldi starfsfólks: Sjómenn 120 Í landi í Vestmannaeyjum 240 Í landi utan Vestmannaeyja 80 Samtals 440 Alls vinna 440 hjá Vinnslustöðinni hf. þar af eru sjómenn 120. Lítil starfsmannavelta eykur  stöðugleika Ánægjuleg viðurkenning fyrir stjórnendur og starfsfólk Sigursteinn Leifsson, útibússtjóri Íslandsbanka í Vestmannaeyjum afhendir Stefáni Friðrikssyni, framkvæmdastjóra Ísfélagsins hf. stóra tertu í tilefni viðurkenningarinnar.  Á myndinni má sjá Jón Viðar Stefánsson, stjórnarmann í Skipalyftunni, taka við viðurkenningunni fyrir hönd Skipalyftunnar.

Vinnslustöðin

-Ánægjuleg viðurkenning fyrir stjórnendur og starfsfólk

Vinnslustöðin hefur í áraraðir hlotið viðurkenningu fyrir að vera framúrskarandi fyrirtæki hjá Creditinfo. Það er ánægjuleg viðurkenning fyrir stjórnendur og starfsfólk fyrirtækisins. Vinnslustöðin hefur verið ört stækkandi félag sem hefur undanfarin ár leitast við að styrkja stöðu sína á afurðamörkuðum með eigin söluneti, sem vel hefur reynst. Það hefur styrkt stöðu þess sem ein af undirstöðum atvinnurekstrar í Eyjum. Fjöldi starfsfólks: Sjómenn 120 Í landi í Vestmannaeyjum 240 Í landi utan Vestmannaeyja 80 Samtals 440.

 

Nýjustu fréttir

Tómas Bent lék allan leikinn í sigri Hearts
Óskar stefnir á þriðja sætið hjá Sjálfstæðisflokki
Bjargið fær rausnarlega gjöf
Loðnufrysting í fullum gangi
Emil skoraði í sigri Íslands á Eistum
Fjórtán gefa kost á sér í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins
Líflegur laugardagsmorgunn – fullfermi og loðnuvinnsla í fullum gangi
Sækist eftir 3. sæti

Góð ráð fyrir siglingu

Sjóveiki

Hvað er sjóveiki?

Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.

Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.

Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.

Góð ráð til að hindra sjóveiki:

  • Góð hvíld daginn fyrir brottför. Að fara seint að sofa og snemma um borð í bát fer ekki vel saman ef fólk er hætt við sjóveiki.
  • Forðist áfenga drykki daginn fyrir brottför
  • Forðist djúpsteiktan, brasaðan eða saltan mat daginn fyrir siglingu.
  • Borðið góðan morgunverð. Borðið gjarnan hvítt brauð, hafragraut og ávexti þó ekki sítrus ávexti.
  • Forðist mikið koffein. Mikið kaffi er ekki það sem maganum líkar fyrir sjóferð.
  • Hafðu mat með þér á sjó. Gott er að hafa samlokur með kjúklingi eða kalkún. Kjötið er fitusnautt og brauðið er róandi í maga. Hafðu endilega eitthvað til að grípa í sem er létt í maga. Bananar eru mjög góðir til að narta í ef þú finnur fyrir ógleði en einnig er gott að hafa létt kex eða annað sem er ekki salt eða fitumikið.
  • Drekkið vel af vatni en einnig er gott er að drekka kóla drykki eða engiferöl í sjóferðinni

Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.

  • Koffínátín – fæst án lyfseðils
  • Postafen – fæst án lyfseðils
  • Scopolamin plástur – lyfseðilsskyltEinnig má fá armbönd gegn ferðaveiki sem sumir telja að hjálpi.

Önnur ráð:

  • Engifer er jurt sem nýlega hefur fengið aukna athygli vegna þess að því er haldið fram að hún geti slegið á ógleði sem fylgir sjóveiki. Til forna tuggðu kínverskir sjómenn engiferrót til að draga úr sjóveiki. Flest lyf sem virka á ógleði verka á heilann en engifer virkar aðeins á magann. Ráðlagt er að taka 1000 mg. hylki hálftíma fyrir brottför. Einnig má taka eitt eða tvö 500 mg. hylki sem eru til viðbótar á ferðalaginu. Ekki er ráðlagt að drekka coke með engifertöflum.
  • Piparminta og te eru einnig gömul húsráð við ferðaveiki.
  • Sumum finnst betra að taka sýrujafnandi töflur, Alminox eða slíkt áður en þú heldur á sjó og þá er gott að hafa box með út á sjó.

Hvar í skipinu er best að vera o.fl.

  • Minna finnst fyrir hreyfingu og veltingi ef maður er staddur næst miðju bátsins.
  • Mörgum finnst gott að vera í kulda, t.d.að vera úti á dekki og láta vindinn leika um sig.
  • Matarlykt fer illa í þá sem hætt er við sjóveiki og einnig pústið frá bátnum.

Þungun:

Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.