Fundað um samgöngur - taka 2
Bergþóra Þorkelsdóttir, vegamálastjóri, Sigurður Ingi Jóhannsson, innviðaráðherra og Íris Róbertsdóttir, bæjarstjóri. Mynd/samsett

Samgöngur við Eyjar verða í brennidepli á íbúafundi sem haldinn verður í Akóges í kvöld. Upphaflega átti að funda um þetta brýna málefni í lok janúar, en vegna samgöngutruflana þá þurfti að fresta fundinum.

Íris Róbertsdóttir, bæjarstjóri opnar fundinn og í kjölfarið verða Sigurður Ingi Jóhannsson, innviðaráðherra og Bergþóra Þorkelsdóttir, forstjóri Vegagerðarinnar með erindi. Í lokin verður svo pallborð þar sem verða umræður og fyrirspurnir.

Fundurinn hefst kl. 19:30 og eru bæjarbúar hvattir til að fjölmenna.

Nýjustu fréttir

Íþróttamaður mánaðarins – Milena Mihaela Patru
Herjólfur III tilbúinn til afleysinga
Sigur hjá Arnari og íslensku stelpunum gegn Póllandi
Freyja flutti búnað fyrir radarhýsi til Eyja
Það á að hrósa því sem vel er gert
Hádegismatur með fjölskyldunni forréttindi 
Stærsti kosturinn að geta búið í Eyjum 
Líkamsrækt við Hástein skrefi nær – tveir sátu hjá
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.