Fyrsti dagur þjóðhátíðar liðinn

Mjög rólegt var hjá lögreglunni í Vestmannaeyjum sl. nótt og engin alvarleg mál komu upp á hátíðarsvæðinu í Herjólfsdal. Veðrið lék við gesti þjóðhátíðar, þurrt og enginn vindur. Aðeins einn gisti þó fangageymslu og var það vegna ölvunarástands.

Á daglegum samráðsfundi Lögreglustjóra með fulltrúum viðbragðsaðila kom fram að fyrsta nóttin hafi verið einstaklega róleg.

Á þriðjatug fíkniefnamála voru kærð í gær og sl. nótt og eru þau þá orðin 30 talsins frá því að lögreglan hóf sitt aukna átak. Mest hefur verið lagt hald á maríhúana, amfetamín og kókaín. Sex lögreglumenn sinna þessu engöngu með fíkniefnahundana, Vinkill, �?oku og Lunu sér til aðstoðar.

Í gær var sagt frá máli þar sem bifreið hafi verið stolið og ekki væri vitað hver hafi verið þar að verki. Við rannsókn á málinu var aðili handtekinn síðdegi í gær og viðurkenndi hann að hafa stolið bifreiðinni og einnig viðurkenndi hann að hafa verið undir áhrifum við aksturinn.

Í dag er búist við að þjóðhátíðargestum muni eitthvað fjölga en töluvert er bókað með Herjólfi og með flugi. Ljóst er þó að þessi hátíð er töluvert fámennari en hátíðin í fyrra enda var þá um met fjölda að ræða.

Nýjustu fréttir

Bæjarstjórn gagnrýnir boðaðan niðurskurð til Herjólfs
ÍBV vann öruggan sigur á Stjörnunni – Sandra fór á kostum
Heimir Hallgrímsson heldur varnarnámskeið í Eyjum í desember
Vestmannaeyjabær leggur sex milljónir í hlutafjáraukningu í Eyjagöngum
Skálað og skrafað í Miðstöðinni – myndir
Eyjakonur vilja halda í við topplið Hauka
Glæsileg söngveisla þriggja kóra í Eyjum
Þoka hér en ekki þar
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.