Gjaldskrár á velferðarsviði lækka
Á bæjarstjórnarfundi í síðustu viku, var samþykkt að lækka ýmsar gjaldskrár á velferðarsviði. Segir í bókun bæjarstjórnarinnar að í ljósi niðurstöðu ársreikninga og þeirrar sterku stöðu í rekstri Vestmannaeyjabæjar sem þar kemur fram samþykkir bæjarstjórn að lækka gjaldskrár og auka þjónustu á velferðarsviði sem hér segir:
1. Niðurgreiðsla til dagmæðra verði hækkuð úr 29.750 kr. í 40.000 kr.
2. Niðurgreiðsla til dagmæðra hefjist fyrr og að viðmiðunaraldur lækki úr 15 mánuðum niður í 12 mánuði.
3. Vistunargjald fyrir 8 klst vistun fari úr 25.280 kr. í 23.763. krónur (lækki um 6%).
4. Vistunargjald í Frístundaveri verði lægst viðmiðunarsveitarfélaga eða 14.020.
5. Frítt verði í sund fyrir öll börn bústett í Vestmannaeyjum (að 18 ára aldri).
6. �?ldruðum verði áfram auðveldað að búa í eigin húsnæði með niðurfellingu á fasteignarskatti.
Allir bæjarfulltrúarnir sjö, samþykktu þessar lækkanir.

Nýjustu fréttir

Vikan í Eyjum: Herjólfur, framkvæmdir við höfnina og fjárhagsáætlun bæjarins
Lúðrasveitin í landsliðsklassa – Kraftur, gleði og glæsilegur samhljómur
Gera ráð fyrir 610 milljóna afgangi á næsta ári
Hausttónleikar Lúðrasveitar Vestmannaeyja í myndum
Bæjarstjórn gagnrýnir boðaðan niðurskurð til Herjólfs
ÍBV vann öruggan sigur á Stjörnunni – Sandra fór á kostum
Heimir Hallgrímsson heldur varnarnámskeið í Eyjum í desember
Vestmannaeyjabær leggur sex milljónir í hlutafjáraukningu í Eyjagöngum
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.