Eitt glæsilegasta skip sem lagst hefur að bryggju í Vestmannaeyjahöfn, liggur nú við kajann á Nausthamarsbryggju. Um er að ræða lystisnekkjuna Vive la Vie, sem er talin vera í eigu svissneska auðkýfingsins Willy Michel. Flaggskip Vestmannaeyjaflotans, Sigurður VE kom til heimahafnar fyrir tveimur dögum og er svo sannarlega eitt glæsilegasta skip íslenska fiskiskipaflotans, m.a. þegar kemur að aðbúnaði áhafnarinnar. En sú aðstaða kemst ekki í hálfkvisti við þann lúxus sem er að finna um borð í Vive la Vie.
Snekkjan hefur verið við landið undanfarna daga, var m.a. í Reykjavík í síðustu viku en í umfjöllun Morgunblaðsins um snekkjuna kom fram að áætlað var að sigla að austurströnd Grænlands. Samkvæmt heimildum Eyjafrétta, vildu þeir sem um borð eru, koma við í Eyjum og taka einn hring á golfvellinum í Eyjum. Ekki er hægt að segja annað en að Heimaey skarti sínu fegursta fyrir hina erlendu gesti í dag, enda frábært sumarveður.
Og það eru ekki bara farþegar á lystisnekkjunni Vive le Vie sem njóta þess sem eyjan hefur upp á að bjóða því skemmtiferðaskipið Adonia liggur nú við akkeri fyrir utan Eiðið og eru farþegar ferjaðir til lands með smábátum.