Glæsilegur sigur hjá strákunum
ÍBV mætti Fjölni í dag í Pepsi deild karla á Hásteinsvelli þar sem ÍBV hafði betur 4-0. Lið ÍBV var mikið breytt frá því í síðasta leik. Hafsteinn Briem og Mees Siers komu aftur inn í liðið eftir leikbann. Abel Dharia, Gunnar Heiðar �?orvaldsson og Sito komu allir inn í liðið en Gunnar Heiðar og Sito voru að spila sinn fyrsta leik fyrir félagið.
ÍBV byrjaði leikinn af krafti og strax á þriðju mínútu komst ÍBV yfir með marki frá Sito, frábær byrjun hjá honum með ÍBV. Aron Bjarnason átti þá skot/sendingu að marki ÍBV og Sito var mættur á fjær og setti boltann í netið. Tíu mínútum síðar kom Hafsteinn Briem ÍBV í 2-0 eftir að hafa tekið boltann á lofti eftir aukaspyrnu frá Ian Jeffs. ÍBV voru að spila frábærlega í fyrri hálfleik og léku á alls oddi, þrátt fyrir að leika gegn sterkum vindi.
Á 30. mínútu kom svo Sito ÍBV í 3-0 með frábæru marki. Gunnar Heiðar �?orvaldsson sendi góða sendingu á Aron Bjarnason sem setti boltann fyrir, beint á Sito sem hamraði boltann í netið. Fjölnir áttu svo tvö ágætis færi undir lok hálfleiksins en ekkert varð úr þeim og staðan 3-0 í hálfleik.
Í hálfleik var svo boðið upp á stjörnuleik í fótboltanum en nánar verður fjallað um hann hér á vef Eyjafrétta í kvöld.
Fjölnir byrjaði síðari hálfleikinn vel og �?órir Guðjónsson komst strax í dauðafæri en Abel varði vel í marki ÍBV. �?órir var svo aftur á ferðinni stuttu síðar en aftur varði Abel frábærlega þar sem hann var farin niður á hnén. Á 60. mínútu átti Sito frábært skot að marki Fjölnis en �?órður, markmaður þeirra varði vel, Gunnar Heiðar fylgdi eftir en �?órður var vel á verði. Fjórum mínútum síðar átti Gunnar Heiðar gott skot en rétt fram hjá. Á 70. mínútu fékk ÍBV víti eftir að �?órður, markmaður Fjölnis braut á Gunnari Heiðari. Gunnar fór sjálfur á punktinn og skoraði tvisvar, en hann þurfti að endurtaka spyrnuna eftir að hafa skorað örugglega fram hjá �?órði, það vafðist ekki fyrir Gunnari að fara aftur á punktinn og skoraði af sama öryggi og staðan orðin 4-0.
Bjarni Gunnarsson kom svo inn á sem varamaður fyrir Sito og var ekki lengi að valda usla því hann komst strax í dauðafæri þar sem markmaður Fjölnis varði vel. Lokatölur leiksins 4-0 en leikurinn hefði allt eins getað farið 7-0, svo mikið var af færum. Frábær sigur hjá ÍBV, góð liðsheild og frábær stemmning í liðinu.

Nýjustu fréttir

Stórleikur á Hásteinsvelli í kvöld
Þriðji sigur ÍBV í röð kom gegn Stjörnunni
Bergmál á Þingvöllum sló í gegn
Mikilvæg stig í húfi þegar Stjarnan kemur til Eyja
MAST, Fiskistofa og Verðlagsstofa skiptaverðs sameinuð
Það þarf meira en hús til að reka skóla
Grjótleit komin á fullt á Haugasvæðinu
Vigga og Guðni hafa heimsótt 86 lönd og eru hvergi nærri hætt
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.