Góð loðnuveiði í dag
Loðna Nót Skip
Á loðnumiðunum.

Loðnuvertíðin er nú í hámarki og eru fyrstu farmarnir á leið til Eyja. Sindri Viðarsson, sviðsstjóri uppsjávarsviðs hjá Vinnslustöðinni segir í samtali við Eyjafréttir að veiðarnar hafi gengið mjög vel hjá strákunum á Gullbergi.

„Bara eitt kast og það dugði í skammtinn. Ástandið á loðnunni hentar mjög vel í frystingu. Við byrjum vinnslu í fyrramálið og stefnan er að frysta allt,” sagði Sindri, en þess má geta að með þessum farmi er kvótanum náð hjá Vinnslustöðinni.

Eyþór Harðarson, útgerðarstjóri Ísfélagsins hafði svipaða sögu að segja. „Sigurður var í Faxaflóa í dag og fékk ca. 600 tonn af loðnu. Er á leið til Eyja og hefst löndun í fyrramálið. Stefnum við á að frysta hverja einustu loðnu úr farminum.”

Nýjustu fréttir

Miðflokkurinn býður fram í Eyjum
Kyrrðarbæn í dag
Tveir handteknir í tengslum við andlát
Vera Lífsgæðasetur og LifeLine Health hefja samstarf
Andrea Jacobsen til liðs við ÍBV
Tafir vegna bilunar
Dagskrá fyrsta Þorrablóts ÍBV klár
Fækkun sjúkrafluga milli lands og Eyja
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.