Göngum í skólann �?? hvatning til skólabarna
Í Lágafellsskóla í fyrramálið, 9. september, mun �?löf Nordal innanríkisráðherra hleypa af stokkunum verkefninu Göngum í skólann. Markmið verkefnisins eru að hvetja börn til að ganga í og úr skóla og auka færni þeirra til að ferðast á öruggan hátt í umferðinni. �?etta er níunda árið sem þetta verkefni er unnið hér á landi.
Göngum í skólann er samstarfsverkefni Samgöngustofu, Íþrótta �?? og �?lympíusambands Íslands, Ríkislögreglustjóra, Embættis landlæknis, mennta- og menningamálaráðuneytis, Slysavarnafélagsins Landsbjargar og Heimilis og skóla.
Nýr umferðarvefur �?? umferd.is
Samgöngustofa mun nota þetta tækifæri til að opna endurhannaðan umferðarvef www.umferd.is sem er samvinnuverkefni Samgöngustofu og Grundaskóla á Akranesi, móðurskóla umferðarfræðslu. Umferðarvefurinn er ætlaður nemendum, kennurum og foreldrum og inniheldur skemmtilega umferðarfræðslu fyrir börn sem er ætlað að auka öryggi þeirra í umferðinni. Meðal nýrra verkefna má nefna bókaflettara þar sem nemendur geta æft sig í lestri um leið og þeir fræðast um mikilvægar umferðarreglur. Samhliða lestrinum getur nemandinn hlustað á upplestur Sigrúnar Eddu Björnsdóttur leikkonu.

Nýjustu fréttir

Bæjarstjórn gagnrýnir boðaðan niðurskurð til Herjólfs
ÍBV vann öruggan sigur á Stjörnunni – Sandra fór á kostum
Heimir Hallgrímsson heldur varnarnámskeið í Eyjum í desember
Vestmannaeyjabær leggur sex milljónir í hlutafjáraukningu í Eyjagöngum
Skálað og skrafað í Miðstöðinni – myndir
Eyjakonur vilja halda í við topplið Hauka
Glæsileg söngveisla þriggja kóra í Eyjum
Þoka hér en ekki þar
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.