Í Jólagjafablaði Eyjafrétta er að finna umfjöllun um hátt í þrjátíu fyrirtæki í þjónustu og verslun í Vestmannaeyjum. Ótrúlega fjölbreytt og góð þjónusta sem boðið er upp á eins og sést í Eyjafréttum sem komu út í gær.
Í Skipalyftunni er hægt að fá fullt af hörðum pökkum, bæði fyrir fagfólkið og ekki síður fólkið sem þarf að hafa réttu verkefærin í röð og reglu. Skipalyftan selur verkfæri frá TopTul, Milwaukee og DeWalt og kemur verðið skemmtilega á óvart. Dæmi um flotta gjöf er hleðsluborvél frá Milwaukee sem kostar rétt um 20 þús krónur.
Verslun Skipalyftunnar hjálpar þér líka að undirbúa jólin og ef þú ætlar að mála getur verið gott að byrja hjá okkur þar sem við erum með málningu frá Flügger og öll þau verkfæri sem þú þarft í málningarvinnuna.
Svo má ekki gleyma dýrunum en við erum með gæludýrafóður frá Royal Canin sem hefur notið mikilla vinsælda hjá okkur.
Tommi og Jenni taka vel á móti öllum sem til okkar koma en þrátt fyrir áralangar deilur um allt og ekkert hafa þeir kappar loks náð sáttum og segja margir að það sé Ómari að þakka. Það er því ekkert að óttast í verslun Skipalyftunnar.





















Skráðu þig á fáðu nýjustu tilkynningar fyrst
Ekki liggja fyrir nýjar mælingar
Hvað er sjóveiki?
Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.
Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.
Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.
Góð ráð til að hindra sjóveiki:
Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.
Önnur ráð:
Hvar í skipinu er best að vera o.fl.
Þungun:
Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.