Græjuveisla í Vestmannaeyjum
Geisli, í samstarfi við Nýherja, umboðsaðila Canon, Lenovo og Sony á Íslandi, efnir til græjuveislu fyrir áhugafólk um ljósmyndun, tölvubúnað, snjalltæki og sjónvörp dagana 16. og 17. maí.
RAX í máli og myndum 16. maí kl. 20:00 í Akóges salnum
Ljósmyndarinn Ragnar Axelsson, RAX, opnar græjuveisluna föstudaginn 16. maí þar sem hann mun fjalla um nýleg verkefni í máli og myndum, meðal annars úr nýlegum ferðum til Grænlands, ásamt því að sýna myndir úr bókinni Fjallaland.
RAX hlaut Blaðamannaverðlaun ársins 2012 fyrir merka umfjöllun og myndir af stórum pollum á Grænlandsjökli sem voru til marks um óvenju mikla bráðnun jökulsins.
�?keypis er á fyrirlestur RAX en nauðsynlegt er að skrá sig.
4K sjónvarp, pylsur og myndataka fyrir börnin 17. maí frá 10-16
Veislan heldur svo áfram á laugardeginum í Geisla frá 10-16 þar sem sérfræðingar frá Nýherja verða á staðnum með nýjustu tölvurnar, snjalltækin, myndavélarnar og magnað Sony 4K sjónvarpstæki, sem er með fjórfaldri upplausn miðað við háskerputækni.
Foreldrar geta mætt með börnin í sumar-myndatöku og hægt verður að fá útprentaða ljósmynd. �?á verður boðið upp á grillaðar pylsur í hádeginu.
Einnig verður nýunninn Íslandsmeistarabikar ÍBV verður til sýnis ásamt því að Guðni Ingvarsson, leikmaður ÍBV og starfsmaður Geisla áritar myndir.

Nýjustu fréttir

Vikan í Eyjum: Herjólfur, framkvæmdir við höfnina og fjárhagsáætlun bæjarins
Lúðrasveitin í landsliðsklassa – Kraftur, gleði og glæsilegur samhljómur
Gera ráð fyrir 610 milljóna afgangi á næsta ári
Hausttónleikar Lúðrasveitar Vestmannaeyja í myndum
Bæjarstjórn gagnrýnir boðaðan niðurskurð til Herjólfs
ÍBV vann öruggan sigur á Stjörnunni – Sandra fór á kostum
Heimir Hallgrímsson heldur varnarnámskeið í Eyjum í desember
Vestmannaeyjabær leggur sex milljónir í hlutafjáraukningu í Eyjagöngum
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.