GRV fær styrk úr sjóðnum Forritarar framtíðarinnar
Grunnskóli Vestmannaeyja (GRV) er einn fjögurra skóla sem fær styrk úr sjóðnum Forritarar framtíðarinnar en styrkirnir verða afhentir í húsakynnum CCP í Reykjavík í dag. Auk GRV fær Smáraskóli, Kirkjubæjarskóli og Grunnskólinn í Sandgerði styrk, sem samtals er upp á fjórar milljónir. Styrkirnir eru í formi tölvubúnaðar og þjálfunar kennara til forritunarkennslu fyrir nemendur.
�??Sjóðurinn Forritarar framtíðarinnar hóf starfsemi sína í byrjun árs 2014 og er megin hlutverk sjóðsins að efla forritunar- og tæknimenntun í grunn- og framhaldsskólum landsins. Skólar og sveitarfélög geta sótt um styrki úr sjóðnum til að efla tæknikennslu og notkun á tækni í skólastarfi og fá til þess þjálfun og tækjabúnað, allt eftir þörfum hvers og eins. �?etta er í annað sinn sem úthlutað er úr sjóðnum en fyrri úthlutunin fór fram 21. febrúar sl. Var þá úthlutað styrkjum að verðmæti fjórar milljónir króna. Samtals hefur því sjóðurinn úthlutað virði tæpra 8 milljóna króna í styrki til skóla á þessu ári,�?? segir í fréttatilkynningu frá sjóðnum.
�??Við erum mjög ánægð með þær viðtökur sem sjóðurinn hefur fengið og þann fjölda umsókna sem hafa borist. Við erum stolt af því að hafa náð að úthluta styrkjum að verðmæti 8 milljóna á fyrsta starfsári. Við höfum fengið til samstarfs við okkur rosalega flotta hollvini, bæði einkafyrirtæki sem og mennta- og menningarmálaráðuneytið sem sýnir okkur hvernig atvinnulífið og hið opinbera geta unnið saman og náð árangri,�?? segir Guðmundur Tómas Axelsson, stjórnamaður í Forriturum framtíðarinnar.
Að sjóðnum koma fyrirtæki og stofnanir af öllum stærðum og gerðum. �?au leggja honum lið með því að leggja honum til fjármagn og tæknibúnað. Bakhjarlar og hollvinir sjóðsins eru Nýherji, Íslandsbanki, Landsbankinn, RB (Reiknistofa bankanna), CCP, Cyan veflausnir, �?ssur og mennta- og menningarmálaráðuneytið.

Nýjustu fréttir

Sjómennskan í blóðinu nýtist í tónlistinni
Grípa þarf hjálpina þegar hún býðst
Næsta skref hjá Eyjagöngum: Borinn kominn á Landeyjasand
Skipað í ráð og nefndir Vestmannaeyjabæjar
„Fjörutíu árum síðar – með þakklæti til FÍV“
Þrír reynslumiklir sjómenn heiðraðir á Sjómannadaginn
Kristín Klara spilaði í Sundsvall með u-19 ára landsliðinu
Æskudraumur Díönu Daggar rættist
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.