�?að verður fjör á Háaloftinu á föstuedaginn, ekki laugardaginn eins og segir í Eyjafréttum í dag, á tónleikum Guðmundar Rúnars Lúðvíkssonar, Geirs �?lafssonar og Kristjáns Jóhannssonar. Allir eiga þeir langan en ólíkan tónlistarferil að baki og verður gaman að sjá og heyra þá leiða saman hesta sína hér í Eyjum um helgina. �?ar með er dagskrá Háaloftsins þetta haustið hafin og ef þessir tónleikar eru vísir að því sem koma skal er ástæða til að hlakka til. Kristján Jóhannsson, stórtenór þarf ekki að kynna fyrir Eyjamönnum.
Hann gerði m.a. garðinn frægan á Scala, Metropolitan og Landakirkju. Geir hefur vaxið sem söngvari með hverju árinu og enginn túlkar betur stórsveitartónlistina þar sem Sinatra var fremstur meðal jafningja. �?skiljanlegt að hafa hann ekki með þegar haldnir voru tónleikar um daginn þar sem þess var minnst að 100 ár eru frá fæðingu meistara Franks Sinatra. En þeirra skaði er okkar lán. �?á er það Guðmundur Rúnar sem víða hefur komið á ferli sínum sem myndlistarmaður og tónlistarmaður. �??Við ætlum að vera með tónleika í Eyjum þann þriðja október, ég og Geir �?lafs með heiðursgestinn Kristján Jóhannson,�?? sagði Guðmundur Rúnar í spjalli við Eyjafréttir.
�??Við skiptum tónleikunum upp í þrjá parta. �?g mun vera einn á sviðinu í smá stund, spila nokkur valin lög sem ég hef flutt í gegnum tíðina, segja söguna á bakvið þau og rifja upp gamlar stundir sem ég átti í Eyjum þegar ég bjó þar. Sum hver urðu einmitt til á þeim tíma.�?? Slor og skítur Margir þekkja Súrmjólk í hádeginu, lag Bjartmars sem Guðmundur gerði eftirminnileg skil en hann er líka afkastamikill tónlistarmaður. Hann átti lög í hinni sígildu mynd, með Allt á hreinu og hver man til dæmis ekki eftir Slori og skít, einkennislag ÍBV strákanna í fótboltanum. Einnig má nefna Hvíta sokka, Gallabuxur, barnaplötuna Barnaspil, Vinna og ráðningar og Atvinnulaus. Nú gefst tækifæri til að hressa upp á gömul kynni og heyra söguna á bak við þau. �??Nú síðan munum við fara í nokkur glæ ný lög eftir mig sem við erum að taka upp þessar vikurnar. �?ar syngur Geir meðal annars nokkur laga minna. Í lokin mun Geir af sinni alkunnu snilld flytja velvalin Frank Sinatra lög ásamt öðrum dægur perlum í gegnum tíðina. Kristján kemur svo inn og tekur perlur eins og O sole mio.
Einnig munu þeir syngja dúett í nýju jólalagi eftir mig.�?? Guðmundur lofar góðum tónleikum og segir hljómsveitina ekki af verri endanum en þar sé valin maður í hverju rúmi. �??Á bassa er Bjarni Sveinbjörnsson, á gítara og fleira er Vilhjálmur Guðjónsson, á trommur er Birgir Nielsen, á píanó er Ástvaldur Traustason og Geir �?lafs sér um áslátt auk að syngja. Auðvitað er mikil tilhlökkun hjá okkur öllum að koma til Eyja með þessa tónleika og sögustund. Vonandi fáum við góða mætingu því það er ekki á hverjum degi sem Geir eða Kristján koma saman, eða hægt sé að rifja upp gamla daga og stundir,�?? sagði Guðmundur Rúnar að lokum.