Haltu fast í höndina á mér - �?jóðhátíðarlagið 2015
�?jóðhátíðarlag Vestmannaeyja 2015 var frumflutt á Bylgjunni í morgun. En það er Sálin hans Jóns mín sem flytur. Lagið heitir “Haltu fast í höndina á mér” og er eftir Guðmund Jónsson með texta eftir Stefán Hilmarsson. Frumflutningin og spjall við Stefán má heyra hér á Vísi.is
Textinn er svo hér að neðan. �?annig að það er um að gera að hækk í græjunum og syngja með.
Haltu fast í höndina á mér
Lag: Guðmundur Jónsson Texti: Stefán Hilmarsson

�?r �?gi köldum
eyland í suðri rís og góður er byr.
Á ölduföldum
í ágústbyrjun þangað siglum sem fyrr.
�?ar söngvar óma
í sæludalnum og í sálinni á mér.
Og augu ljóma
því æði margir finna ástina hér.
Má ég kíkja í tjaldið hjá þér?
Við elskum lífið þessar ljúfu nætur
þá logar lýsa upp ævintýraheim.
Hér rætast draumar ef að líkum lætur.
||: Haltu fast í höndina á mér. :||
Svo kemur dagur
og kannski sólin okkur kyssi um stund.
Hve hann er fagur
hamarinn hái sem við liggjum hér und.
En tíminn flýgur,
sjá fyrr en varir fölna urtir og láð.
Sumarið líður svo fljótt,
�??en varla mér úr minni í bráð.
Tökum síðar upp þennan þráð.
Við elskum lífið þessar ljúfu nætur
þá logar lýsa upp ævintýraheim.
Hér rætast draumar ef að líkum lætur.
||: Haltu fast í höndina á mér :|| �?? þessa nótt…

Nýjustu fréttir

Þrjár ólögmætar uppsagnir kalla á skýr svör
Vinnslustöðin á erlendum vettvangi
„Vestmannaeyjar eru til fyrirmyndar“
Hljómey og Vestmannaeyjabær framlengja samstarfið
Loðnuráðgjöf lækkar úr 358 þúsund tonnum í tæp 106 þúsund
Óvenjudjúp lægð í spákortum – gul viðvörun á Suðurlandi
Þrjár uppsagnir hjá Vestmannaeyjabæ úrskurðaðar ólögmætar
Skráning hafin fyrir hrekkjavökuna
viðburðir
Atvinna
13. október 2026
17:15
Íbúaþing um atvinnustefnu í Eldheimum
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.