Hárrétt viðbrögð áhafnar björguðu mannslífum
Ekki mátti tæpara standa þegar þrír af skipsverjum Hugins VE urðu fyrir eitrun þegar þeir unnu við að skipta um loka í dælurými skipsins sl. miðvikudag. Tveir mannanna voru að losa lokann við mjög erfiðar aðstæður niður í kili skipsins og þriðji maðurinn var þeim til að­stoðar á palli fyrir ofan þegar gas komst inn í rýmið með þeim afleiðingum að mennirnir liðu útaf vegna eitrunarinnar. Tveir þeirra komust fljótt til meðvitundar aftur en sá þriðji sem varð verst úti var fluttur með sjúkraflugvél á Land­spítalann í Reykjavík. Mennirnir eru á góðum batavegi og talið er að snarræði og hárrétt viðbrögð skipsfélaga þeirra hafi orðið til þess að þeir björguðust og urðu ekki fyrir heilsutjóni.

Nýjustu fréttir

Vatnslekinn rakinn til ónýtrar lagnar við Sprönguna
Eyjablikksmótið fer fram í Vestmannaeyjum um helgina
Síðasti opni fundur Vina í bata á mánudag
ÍBV tapaði með sex mörkum á Akureyri
Elmar með tíu stoðsendingar í sigri Nordhorn
Frá borholusjó til flögusalts
46 íbúðir í byggingarferli í Eyjum – 20 fullbúnar en ónotaðar
Júníus Meyvant með tónleika í Alþýðuhúsinu
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.