Hásteinsvöllur: Ekki gert ráð fyrir hitalögnum
IMG 6774
Skóflustunga vegna upphafsframkvæmda gervigrasvallar á Hásteinsvelli var tekin föstudaginn 1. nóvember. Eyjafréttir/Eyjar.net: TMS

Skóflustunga vegna upphafsframkvæmda gervigrasvallar á Hásteinsvelli var tekin fyrsta dag nóvember.  Framkvæmdir vegna jarðvinnu og lagna er í útboðsferli en tilboð voru opnuð þann 7. nóvember sl. Eyjafréttir óskuðu eftir að fá kostnaðaráætlun fyrir verkið en hún verður ekki gerð opinber strax.

„Kostnaðaráætlun verður birt með tilboðum eftir opnun þeirra og verður aðgengilegt eftir næsta fund framkvæmda- og hafnarráðs,”

segir Brynjar Ólafsson, framkvæmdastjóri umhverfis- og framkvæmdasviðs Vestmannaeyjabæjar í samtali við Eyjafréttir.

Flóðlýsing boðin út á næsta ári

Aðspurður um hvort ekki verði settar hitalagnir undir völlinn svarar Brynjar því til að sé ekki gert ráð fyrir hitalögnum í útboðsgögnum. „Bara lagnir undir völlinn með tengikistum er áætlaður um 35-40 m.kr.” segir hann spurður um áætlaðan kostnað við slíka framkvæmd. Er Brynjar er spurður um hvenær áætlað sé að bjóða út flóðlýsingu segir hann að slík lýsing verði við völlinn og verður það boðið út á næsta ári.

Hvenær er áætlað að framkvæmdir hefjist og hvenær á völlurinn að verða leikfær?  Ég áætla að framkvæmdir hefjist í nóvember/desember. Stefnt er að völlurinn verði leikfær 1. maí.

Nýjustu fréttir

Tími til kominn að taka næsta skref
Ákvarðanir fyrir framtíðarkynslóðir
Í dag eru 75 ár frá Glitfaxaslysinu
Hárígræðslur í Tyrklandi 
Húsið of hátt – skipulagi breytt eftir á og nágrannar ósáttir
Elliði fyrir leikinn gegn Dönum
Spáð í spilin fyrir stórleikinn í kvöld á EM
Tíðarandi liðinna ára í myndum í Sagnheimum
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.