HEIMILISTÓNAR í Eldheimum

Hin stórskemmtilega kvennahljómsveit Heimilistónar er skipuð fjórum af ástsælustu leikkonum þjóðarinnar. Elva Ósk Ólafsdóttir, Vígdís Gunnarsdóttir, Katla Margrét Þorgeirsdóttir og Ólafía Hrönn eru ekki bara leikkonur heldur líka söngkonur og hljóðfæraleikarar.

Þær slógu í gegn árið 2018 með þátttöku sinni í undankeppni Eurovision söngvakeppninnar með lagið “Kúst og fæjó”. Það verður tekið ásamt öðrum slögurum sem sveitin hefur gert að sínum og allir þekkja.
Einnig má búast við leynigestum eins og tíðkast á tónleikum sveitarinnar.

Tónleikar Heimilistóna eru líður í fjölbreyttri dagskrá Eldheima og Vestmannaeyjabæjar á stóra gos-tímamóta árinu.  Hljómsveitin ætlar að frumflytja lag sem tileinkað er Vestmannaeyjum.

Tónleikar hefjast kl: 21:00, allar frekar upplýsingar í Eldheimum s. 4882700

Nýjustu fréttir

Á rauðu ljósi í Reykjavík
Elmar kom að tólf mörkum fyrir Nordhorn
Íslensku stelpurnar töpuðu gegn Svartfjallalandi
Draumurinn rættist á 100 ára afmæli – Taflfélag Vestmannaeyja Íslandsmeistari
Andlát: Einar Birgir Sigurjónsson
Vestmannaeyjar – Grænt ljós
Dramatískur sigur hjá Taflfélagi Vestmannaeyja – úrslitin ráðast í dag
Fólk en ekki flokka
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.