Herjólfur III aftur á sölu
Hebbi Lan
Herjólfur III hefur m.a. verið nýttur í afleysingar fyrir Herjólf IV þegar hann stoppar vegna viðhalds.

Herjólfur III er aftur kominn á sölu á erlendri sölusíðu, hjá J. Gran & Co. G. Pétur Matthíasson, upplýsingafulltrúi Vegagerðarinnar segir í samtali við Eyjafréttir aðspurður um hvort búið sé að samþykkja af yfirvöldum að selja skipið að svo sé. „Alþingi hefur samþykkt það með heimild í fjárlögum.”

Í einkasölu í þrjá mánuði

G. Pétur segir að heimildin sé til staðar og hefur verið, þ.e.a.s. að selja eða leigja Herjólf III sbr. 6.gr. fjárlaga og nú fjárlagafrumvarps: „7.9 Að selja eða leigja ferjuna Herjólf III.“

Spurður um hvort ferjan sé í einkasölu hjá umræddu fyrirtæki svarar hann því til að Herjólfur III sé í einkasölu í þrjá mánuði hjá aðilum sem Vegagerðin hefur unnið með áður í tengslum við leigu Herjólfs til Færeyja. Inntur eftir svörum um af hverju innlendum skipasölum sé ekki einnig boðið að selja ferjuna svarar G. Pétur að mjög líklega verði það gert að loknum þessum þremur mánuðum.

Ekki seldur nema afleysingar séu tryggar og afleysingaskip til reiðu

Herjólfur III hefur einnig verið til taks ef eitthvað kemur uppá hjá Herjólfi IV eða hann þarf í slipp eða í viðhaldsstopp. Hvað það varðar svara G. Pétur að Herjólfur III verði ekki seldur nema afleysingar séu tryggar og afleysingaskip til reiðu.

„Í þessu ferli er sett fram svokallað „vænt virði“ á Herjólfi III sem er viðmiðunarverð. Skipið verður selt hæstbjóðanda og verður ekki selt nema fyrir það fáist sanngjarnt og hagkvæmt verð.” segir G. Pétur Matthíasson.

Nýjustu fréttir

Bókunarkerfi Herjólfs komið aftur í gagnið
Nám í fiskeldisfræði opnar margar dyr  
Nýtt blað Eyjafrétta komið út
Framboðin mætast í Eldheimum í dag
Fjölskylduafþreying í íþróttahúsinu
Sex ferðir í Landeyjahöfn á morgun
Ríkisstyrkt áætlunarflug til Eyja framlengt út mánuðinn
ÍBV á þrjá fulltrúa sem fara á Evrópumótið með u-18
viðburðir
Oddvitar 2026 Samsett
14. maí 2026
17:00
Opinn framboðsfundur Eyjafrétta í Eldheimum
Matey 2022
22. maí 2026
18:00
MATEY Seafood Festival
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.