Hreyfiseðlar verða hluti af al­mennri heil­brigðisþjón­ustu
OLYMPUS DIGITAL CAMERA
OLYMPUS DIGITAL CAMERA
Í dag voru und­ir­ritaðir samn­ing­ar um inn­leiðingu hreyfiseðla í sam­ræmi við ákvörðun heil­brigðis­yf­ir­valda um að gera hreyfiseðla hluta af al­mennri heil­brigðisþjón­ustu. Sam­kvæmt til­kynn­ingu er til­rauna­verk­efni um notk­un hreyfiseðla lokið og nú tek­ur við áætl­un um end­an­lega inn­leiðingu þessa meðferðarforms hjá heil­brigðis­stofn­un­um um allt land.
Notk­un hreyfiseðla felst í því að lækn­ar geta á form­leg­an hátt vísað sjúk­ling­um á hreyf­ingu telji þeir að reglu­bund­in og skipu­lögð hreyf­ing geti gagn­ast þeim sem hluti af meðferð. �?egar mat lækn­is ligg­ur fyr­ir tek­ur svo­kallaður hreyf­i­stjóri við sem út­býr í sam­ráði við sjúk­ling­inn áætl­un um hvers kon­ar hreyf­ingu hann eigi að stunda, hve oft, hve lengi í einu og af hve mik­illi ákefð. Áætl­un­in tek­ur mið af áhrif­um hreyf­ing­ar á þau vanda­mál sem sjúk­ling­ur­inn á við að etja. Sam­kvæmt til­kynn­ingu er það áskilið er að hreyf­i­stjór­arn­ir séu menntaðir sjúkraþjálf­ar­ar með að minnsta kosti þriggja ára starfs­reynslu.
Inn­leiðing hreyfiseðla á Íslandi bygg­ist á sænskri fyr­ir­mynd en þetta meðferðarform hef­ur náð mik­illi út­breiðslu þar og víðar um lönd á und­an­förn­um árum og þykir ár­ang­urs­rík.
Í til­kynn­ing­unni kem­ur fram að við und­ir­rit­un samn­ing­anna í dag sagðist Kristján �?ór Júlí­us­son heil­brigðisráðherra vera viss um að hreyfiseðlarn­ir eigi eft­ir að bæta líf margra og jafn­framt hvetja fólk og styrkja til þess að taka aukna ábyrgð á heilsu sinni: �??Hreyf­ing er öll­um holl og get­ur hvoru tveggja nýst sem meðferð og for­vörn við þeim marg­vís­legu lífs­stíls­sjúk­dóm­um sem herja á okk­ur í nú­tíma­sam­fé­lag­inu. Hjarta- og æðasjúk­dóm­ar, lungna­sjúk­dóm­ar, stoðkerf­is­sjúk­dóm­ar, syk­ur­sýki, offita, kvíði, þung­lyndi og streita. Allt eru þetta sjúk­dóm­ar sem valda mikl­um skaða, skerða lífs­gæði fólks og leiða marga til dauða. Allt sem við get­um gert til að sporna við þess­um sjúk­dóm­um fel­ur í sér ávinn­ing, fyr­ir ein­stak­ling­ana sem í hlut eiga og fyr­ir sam­fé­lagið í heild.�??

Nýjustu fréttir

Samfélag fyrir fjölskyldur
ÍBV tapaði gegn Haukum – Oddaleikur framundan
Kvennalið ÍBV byrjar Bestu deildina á sigri
Allir út að plokka á Heimaey á morgun
Spurt og svarað: Guðbjörg Sól frá Sjálfstæðisflokknum
VSV á stórsýningu í Barcelona: „Mikilvægt að vera sýnileg“
Vorhátíð Landakirkju
Byggjum þetta bara
viðburðir
26. apríl 2026
11:00
Stóri plokkdagurinn
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.