Hreyfivika UMFÍ - Sundkeppni sveitarfélaganna
Í tilefni af Hreyfiviku UMFÍ hafa fjölmörg sveitarfélög á landinu skorað á hvert annað í sundkeppni. Keppnin hófst í dag og stendur til 27.september. �?átttakendur skrá á eyðublað sem liggur frammi í afgreiðslu sundlaugar hversu marga metra er synt á hverjum degi. Sundæfingar og skólasund telst ekki með. Skráðu þínar ferðir og taktu þátt fyrir þitt sveitarfélag.
Boðið verður upp á hátt í 400 viðburði í Hreyfiviku UMFÍ sem hefst mánudaginn 21. september. Ljóst er að fleiri sveitarfélög taka þátt í Hreyfiviku en nokkru sinni áður. Margir nýir viðburðir eru að koma inn og má í því sambandi nefna að efnt verður til sundkeppni á milli sveitarfélaga, í anda hliðstæðar keppni sem fram fór samhliða norrænu sundkeppninnar hér á landi á áttunda áratugnum.
Hreyfivika UMFÍ er hluti af stóru lýðheilsuverkefni sem fer fram um alla Evrópu dagana 21. til 27. september. Markmiðið er að fá hundrað milljónir Evrópubúa í viðbót til að hreyfa sig reglulega fyrir árið 2020.
Allar nánari upplýsingar á www.umfi.is

Nýjustu fréttir

Bæjarstjórn gagnrýnir boðaðan niðurskurð til Herjólfs
ÍBV vann öruggan sigur á Stjörnunni – Sandra fór á kostum
Heimir Hallgrímsson heldur varnarnámskeið í Eyjum í desember
Vestmannaeyjabær leggur sex milljónir í hlutafjáraukningu í Eyjagöngum
Skálað og skrafað í Miðstöðinni – myndir
Eyjakonur vilja halda í við topplið Hauka
Glæsileg söngveisla þriggja kóra í Eyjum
Þoka hér en ekki þar
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.