Huginn varð vélarvana í innsiglingunni - uppfært
Huginn 20250130 155447
Huginn VE í innsiglingunni. Eyjafréttir/Eyjar.net: TMS

Síðdegis í dag varð Huginn VE vélarvana í innsiglingunni í Vestmannaeyjahöfn. Bæði Lóðsinn og björgunarskipið Þór héldu til aðstoðar, en skipið var austan við Hörgaeyrargarð þegar það varð vélarvana.

Uppfært kl. 17.05:

Að sögn Sindra Viðarssonar, sviðsstjóra uppsjávarsviðs Vinnslustöðvarinnar drapst á aðalvél skipsins þegar þeir voru að sigla inn innsiglinguna. Áhöfnin náði að kasta akkeri og það í raun bjargar því að skipið fer ekki upp í garðinn.

,,Þeir bregðast í raun hárrétt við. Skipið var á lítilli ferð þegar þetta gerist. Eftir að aðstoð barst frá Lóðsinum og frá Björgunarfélaginu var ákveðið að sleppa akkerinu og keðjunni. Það verður svo kafað eftir því þegar tækifæri gefst og búið er að tryggja að öruggt sé að hífa það af hafsbotni, segir Sindri í samtali við Eyjafréttir.

Þá segir í tilkynningu frá Landsbjörgu að taug hafi verið komið aftur úr Huginn í Lóðsinn sem togaði í hann á meðan Þór lagðist með stefnið á síðu Hugins aftarlega til að ýta á hann til að snúa skipinu. Þessar aðgerðir gengu fljótt og vel.

Fyrirsögn var breytt eftir að ljóst var að skipið tók ekki niðri.

Huginn Opf 20250130 160803
Hér má sjá þegar búið var að losa akkeri skipsins. Eyjafréttir/Eyjar.net: ÓPF

 

20250130 161844

Huginn VE í innsiglingunni til Vestmannaeyja
Ljósmynd/Landsbjörg.

Nýjustu fréttir

Róbert hjá ÍBV næstu tvö árin
Framkvæmdir langt komnar í Íþróttamiðstöðinni
Skákþing Vestmannaeyja: Úrslitin ráðast í síðustu umferðunum
Yfir 90% íbúa ánægðir
Bríet kemur fram á Hljómey
Sæunn Magnúsdóttir gengur til liðs við Miðflokkinn
Framkvæmdir hafnar við Áshamar 77  
Dýptarmælingar fyrirhugaðar í Landeyjahöfn
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.