Hugmynd um jarðgöng lifir enn góðu lífi

Nú nýverið var haldinn ágætur fundur með forsvarsmönnum Vegagerðarinnar og samgönguráðuneytisins, þar sem staða gangamálsins var rædd með þeim sérfræðingum sem komið hafa að málinu. �?gisdyr binda góðar vonir við að með þeim fundi komist hreyfing á málin og rannsóknum vegna jarðganga verði gert jafn hátt undir höfði og öðrum kostum sem eru til skoðunar.

Samgönguáætlun sú sem nú liggur fyrir Alþingi er einungis áætlun og henni fylgja ekki ákvarðanir um fjárveitingar. Áætlanir eru vissulega gagnlegar en eins og við vitum þá geta þær tekið breytingum. Varðandi samgöngur við Vestmannaeyjar þá er nauðsynlegt að ríkisstjórn og Alþingi Íslendinga hlusti betur eftir þörfum og óskum Eyjamanna, annars vegar hvað varðar núverandi samgöngur og hins vegar það sem snýr að framtíðarlausn.

�?gisdyr eru að vinna í því af fullum krafti að koma af stað nauðsynlegum jarðfræðirannsóknum við Eyjar, en allir sérfræðingar eru sammála um að það sé svæðið sem þurfi að skoða hvað best. Stefnt er á að þær rannsóknir hefjist á vordögum og niðurstöður liggi fyrir í byrjun sumars. �?að er mikilvægt fyrir ráðamenn þjóðarinnar að hafa sem réttastar upplýsingar þegar ákvörðun um framtíðarlausn í samgöngum við Vestmannaeyjar verður tekin.

Stjórn �?gisdyra

Nýjustu fréttir

Safna fyrir innileikvelli fyrir börn 
85 ára saga Rauða krossins í Eyjum – opið hús í Arnardrangi á sunnudag
Skýr skilaboð frá flokksmönnum 
Framtíðarsýn og grunngildi – Hvert erum við að fara?
Landeyjahöfn – Þurfum öflugt dæluskip
Viljum frekar byggja upp en að rífa niður 
Dæluskipið Álfsnes á Bíldudal
Ótrúlegt að 1.200 manns taki þátt í prófkjöri í svona litlu samfélagi 
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.