Í tilefni af endurnýjun á vopnaeign lögreglunnar í landinu
Stefán Geir Gunnarsson starfaði á árum áðum sem lögreglumaður í Vestmannaeyjum. Hann skrifaði á facebooksíðu sína reynslusögu úr starfi sínu, í tilefni að umræðu sem nú gengur yfir um byssur í höndum lögreglumanna.
D�?MISAGA AF SJALFUM M�?R Í L�?GREGLUB�?NINGI VIÐ MORÐVETTVANG Í EYJUM H�?R ÁÐUR FYRR.
Aðstæður: Var einn til staðar til útkalls þessa nótt vegna tollskoðunar sem við aðstoðuðum tollgæsluna iðulega við.
Fékk útkall varðstjóra að fara á staðinn, sem lögreglumaður, sjúkraflutningamaður og í aðstæðum þar sem tilkynnt er um morðtilraun í heimahúsi í austurbæ Heimaeyjar á einstaklingi. Miðað við búnað minn í bílnum átti ég ekki margra kosta völ. Búnaður minn til að mæta á vettvang harmleiksins fólst í því að ég hafði handjárn og trékylfu, en engin skotfæri mér og öðrum til halds og trausts, en skotheld varnaðarvesti, voru ekki þekkt í tungumálinu, Til að ráða niðurlögum meints árásarmanns og hlúa að meintu fórnarlambi þurfti ég að taka ákvörðun um að forgangsraða framhaldinu. Að vera sá sem yfirbugaði meintan árásarmann og gera hann óvirkan með járnum, vernda rannsóknarvettvang, veita neyðaraðstoð við fórnarlamb glæpsins og skrá vitni.
Auðvitað var ráðist strax í það, eftir að mér barst hjálp að flytja fórnarlambið á neyðarmóttöku – en hann lést í höndum okkar í lyftu í Sjúkrahúsi Vestmannaeyja.
�?essa frásögn geta vinir mínir og núverandi lögreglumenn staðfest.
�?g hefði, vegna ofangreinds útkallsdæmis hjá mér, gjarnan viljað hafa byssu sem kost í lögreglubílnum hjá mér vegna algjörlega óvissra öryggisaðstæðna á vettvangi og mér og öllum viðkomandi á staðnum til öryggis. Að sjálfsögðu hefði verið leitað samþykkis varðstjóra áðuren til vettvangs var komið.
�?g get auðveldlega skilið aðstæður lögreglumanna í fámennari umdæmum og þá ótrúlegust erfiðleika sem þeir þurfa að kljást við.
En við búum við hópa í þessu landi sem kjósa að snúa öllu á haus og fjölmiðlanir taka undir í gúrkutíðinni og reyna að hengja einhvern í “Stóra byssumálinu”.
�?að hefur alltaf verið til byssa hjá lögreglunni í Eyjum í tugi ára og ég hef mörg líf á samviskunni við notkun á henni við aflífannir á hundum í den. �?að er engin breyting í starfsháttum lögreglunar, hún hefur eftir sem áður aðgang að vopnum og hún er EKKI að fara að bera vopn í daglegum störfum sínum.
Stefán Geir Gunnarsson, fyrrverandi lögreglumaður

Nýjustu fréttir

Þórunn Pálsdóttir er Eyjamaður mánaðarins
MATEY: Vilhjálmur Sigurðarson með fágaðan og frumlegan seðil á Næs
Leita að fyrsta sigrinum gegn sterku liði Víkinga
Kíkt inn á kosningavökur framboðanna
Lokatölur: Sjálfstæðisflokkurinn með hreinan meirihluta
Fimm menn hjá D-lista samkvæmt fyrstu tölum
Kíkt í kosningakaffi framboðanna – myndir
Herjólfur stefnir á hefðbundna sjö ferða áætlun frá mánudegi
viðburðir
Matey 2022
22. maí 2026
18:00
MATEY Seafood Festival
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.