ÍA sigraði ÍBV
ÍBV sótti ÍA heim í 11. umferð Pepsi deildar karla í dag þar sem Skagamenn höfðu betur 3-1.
Fyrri hálfleikur var einstaklega líflegur og kom Víðir �?orvarðarson ÍBV yfir strax á 11. mínútu með skalla af markteig eft­ir send­ingu frá Ian Jeffs. Eftir markið voru Eyjamenn mun sprækari og voru líklegir til að bæta við öðru marki en það var svo undir lok fyrri hálfleiks, nánar tiltekið á 39. mín­útu þegar Arn­ar Már Guðjóns­son jafnaði met­inn með frá­bæru skoti af þrjátíu metra færi, algjörlega óverjandi fyrir Guðjón Orra í marki ÍBV. Staðan í hálfleik 1-1.
Skagamenn komust svo yfir strax í upphafi síðari hálfleiks þegar Arsenij Buinickij var einn og óvaldaður í teignum og skallaði boltann í netið. ÍBV náði ekki ekki að skapa sér nein almennileg færi, en lítið gekk. Skagamenn bættu svo við þriðja markinu á 75. mín­útu. �?órður �?órðar­son átti fal­lega send­ingu inn í teig, beint á koll­inn á Halli Flosa­syni sem setti bolt­ann í markið. Lokatölur 3-1 fyrir ÍA.
ÍBV er í næst neðsta sæti deildarinnar með 8 stig.

Nýjustu fréttir

Metþátttaka í The Puffin Run í ár
Álfsnes, kjarnaborun og höfnin
Vestmannaeyjar, eyjan okkar
Dýpkun gengur hægt – betri horfur síðar í vikunni
Spurt og svarað: Arndís María frá Eyjalistanum
Eitt tilboð í Gjábakkakant – samið niður eftir opnun
Frábæru Íslandsmóti í sveitakeppni í Boccia lokið
Átta dagar og engin svör frá ráðherrum
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.