ÍBV áfram eftir baráttusigur í Garðabæ
Kvennalið ÍBV í handknattleik tryggði sér sæti í 8-liða úrslitum Coca Cola bikarkeppninnar með baráttusigri í Garðabæ en liðið lagði Stjörnuna að velli með tveimur mörkum, 22:24. Leikmenn ÍBV urðu að hafa mikið fyrir sigrinum enda var Stjarnan yfir allan tímann, allt þar til um fjórar mínútur voru eftir, að ÍBV komst yfir 21:22. Stjarnan hafði mest náð fjögurra marka forystu í fyrri hálfleik 9:5 og svo þriggja marka forystu í síðari hálfleik þegar um tíu mínútur voru eftir. En með mikilli baráttu og klókindum tókst ÍBV að snúa leiknum sér í vil eins og áður sagði. Frábær sigur og ekki væri leiðinlegt að eiga eitt bikarævintýri í vetur, jafnvel tvö.
Mörk ÍBV: Telma Amado 8, Díana Dögg Magnúsdóttir 6, Vera Lopes 5/4, Jóna Sigríður Halldórsdóttir 2, Ester �?skarsdóttir 2, Elín Anna Baldursdóttir 1.
Varin skot: Dröfn Haraldsdóttir 13.
Fjör hjá B-liðinu og markmiðinu var náð
B-lið ÍBV tók í kvöld á móti úrvalsdeildarliði Hauka í Eyjum í sömu keppni. B-liðið skipuðu margar fyrrum kempur ÍBV, eins og Andrea Atladóttir, Ingibjörg Jónsdóttir, Guðbjörg Guðmannsdóttir og �?órsteina Sigurbjörnsdóttir og var virkilega gaman að sjá þær aftur á vellinum. �?ær veittu líka Haukum verðuga mótspyrnu framan af en fyrstu tuttugu mínúturnar skiptust liðin á að skora og var staðan m.a. 9:9 þegar tíu mínútur voru til leikhlés. En þá virtist allt hrökkva í baklás hjá ÍBV sem skoraði aðeins eitt mark gegn níu mörkum það sem eftir lifði hálfleiksins og staðan í leikhléi 10:18
Andrea sagði í viðtali á Eyjafréttum fyrir leikinn að markmiðið væri einfalt, að skora meira en tuttugu mörk. Annað væri algjört aukaatriði en stelpurnar stóðu við sitt og náðu markmiðinu því lokatölur urðu 22:33.
Mörk ÍBV: Guðbjörg Guðmannsdóttir 5, �?órsteina Sigurbjörnsdóttir 4, Rakel Hlynsdóttir 4, Ingibjörg Jónsdóttir 3, Georgeta Grigore 3, Marinela Purat 2, Lísa Njálsdóttir 1. Auk þeirra léku þær Andrea, Aníta Ýr Eyþórsdóttir, Hildur Sólveig Sigurðardóttir, Bjarný �?orvarðardóttir í leiknum og gott ef ekki nokkrir aukaleikmenn hafi laumað sér inn á sem ekki voru á leikskýrslu.
�?ær �?órunn Jörgensdóttir, Íris Sigurðardóttir og Tinna Tómasdóttir stóðu vaktina í markinu til skiptis og stóðu sig ágætlega.

Nýjustu fréttir

Vilja vernda einstakt lífríki sunnan Íslands
Viðreisn vill raunverulegar forvarnir gegn nikótínneyslu ungmenna
Brottför seinni ferðar flýtt vegna versnandi veðurs
Níu útgefendur fá styrki til fjölmiðlunar í héraði
Óveðrið í myndum
Uppvakningafaraldur skellur á Íslandi í nýju hlaðvarpi úr Eyjum
Þakplata farin að losna – hviður náðu 51 m/s á Stórhöfða
Skólahaldi seinkað til klukkan 9 vegna veðurs
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.