ÍBV fór illa með Aftureldingu
Kvennalið ÍBV vann í kvöld stórsigur á Aftureldingu 8:0. Staðan í hálfleik var 4:0 en með sigrinum er ÍBV svo gott sem búið að tryggja sér áframhaldandi sæti í úrvalsdeild. ÍBV er nú í 7. sæti með 18 stig en Afturelding er í 9. sæti, fallsæti með 7 stig. 11 stig eru á milli liðanna og 12 stig eftir í pottinum. ÍBV á eftir að spila gegn FH og ÍA, tveimur af þremur neðstu liðunum og mun án efa vinna ÍA, sem hefur aðeins eitt stig eftir 14 leiki. �?ar með væri sætið endanlega öruggt. Eyjastúlkur ættu því að geta farið að horfa upp töfluna í stað þess að horfa niður á hana. Staðan er nefnilega þannig að aðeins eru fimm stig upp í fjórða sætið og ljóst að enn er möguleiki á að komast ofar.
Mörk ÍBV gerðu þær Vesna Elísa Smiljkovic (2), Díana Dögg Magnúsdóttir (2), Kristín Erna Sigurlásdóttir, �?órhildur �?lafsdóttir, Bryndís Hrönn Kristinsdóttir og eitt marka ÍBV var sjálfsmark Aftureldingar.

Nýjustu fréttir

Lúðrasveitin í landsliðsklassa – Kraftur, gleði og glæsilegur samhljómur
Gera ráð fyrir 610 milljóna afgangi á næsta ári
Hausttónleikar Lúðrasveitar Vestmannaeyja í myndum
Bæjarstjórn gagnrýnir boðaðan niðurskurð til Herjólfs
ÍBV vann öruggan sigur á Stjörnunni – Sandra fór á kostum
Heimir Hallgrímsson heldur varnarnámskeið í Eyjum í desember
Vestmannaeyjabær leggur sex milljónir í hlutafjáraukningu í Eyjagöngum
Skálað og skrafað í Miðstöðinni – myndir
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.