ÍBV komið með undirtökin
Kvennalið ÍBV er komið með undirtökin í viðureign sinni gegn FH í 8-liða úrslitum Íslandsmótsins. Liðin áttust við í fyrsta leik í dag í Eyjum en vinna þarf tvo leiki til að komast áfram í undanúrslit. ÍBV vann með átta mörkum, 25:17.
Eyjaliðið var reyndar nokkuð lengi af stað og hafði aðeins skorað tvö mörk þegar fyrri hálfleikur var hálfnaður. En eftir það brustu flóðgáttirnar, ÍBV náði að snúa leiknum sér í vil og var yfir í hálfleik 11:8.
Í síðari hálfleik bar helst til tíðinda að Vera Lopes, markahæsti leikmaður ÍBV og sá besti í vetur, fékk að líta rauða spjaldið um miðjan hálfleikinn. Í handbolta eru nú tvær gerðir af rauðum spjöldum, rautt spjald með og án skýrslu dómara. Ef engin skýrsla fylgir, þýðir rauða spjaldið ekki endilega leikbann en meiri líkur eru á því ef dómarar senda skýrslu með. �?að kemur svo í ljós á þriðjudag á fundi aganefndar hvort Lopes ver í leikbann en það yrði sannarlega skarð fyrir skildi hjá ÍBV. Fram að rauða spjaldinu hafði Lopes skorða sjö mörk fyrir ÍBV.
En aðrir leikmenn ÍBV náðu ágætlega að leysa fjarveru Lopes og átta marka sigur ágætt veganesti í leik tvö sem fer fram í Hafnarfirði á þriðjudag.
Mörk ÍBV: Vera Lopes 7, Guðbjörg Guðmannsdóttir 6, Telma Amado 4, Díana Dögg Magnúsdóttir 4, Sóley Haraldsdóttir 2, Ester �?skarsdóttir 2.

Nýjustu fréttir

Vikan í Eyjum: Herjólfur, framkvæmdir við höfnina og fjárhagsáætlun bæjarins
Lúðrasveitin í landsliðsklassa – Kraftur, gleði og glæsilegur samhljómur
Gera ráð fyrir 610 milljóna afgangi á næsta ári
Hausttónleikar Lúðrasveitar Vestmannaeyja í myndum
Bæjarstjórn gagnrýnir boðaðan niðurskurð til Herjólfs
ÍBV vann öruggan sigur á Stjörnunni – Sandra fór á kostum
Heimir Hallgrímsson heldur varnarnámskeið í Eyjum í desember
Vestmannaeyjabær leggur sex milljónir í hlutafjáraukningu í Eyjagöngum
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.