ÍBV sigraði Fylki sannfærandi
Fylk­ir tók á móti ÍBV á Fylk­is­velli í Árbæ í 6. um­ferð Pepsi­ deild­ kvenna þar sem ÍBV sigraði sannfærandi 4-1 eftir að hafa verið 4-0 yfir í hálfleik.
Leikurinn fór frekar rólega af stað, það var ekki fyrr en á 33. mínútu að Shaneka Gordon braut ísinn og skoraði fyrsta mark leiksins og staðan orðin 1-0 fyrir ÍBV. Eftir markið tók ÍBV öll völd á vellinum og skoruðu þær næstu þrjú mörk á 5 mínútum. Kristín Erna Sigurlásdóttir kom ÍBV í 2-0 á 41. mínútu og Shaneka Gordon skoraði sitt annað mark í leiknum rétt undir lok fyrri hálfleiks. Cloe Lacasse kom svo ÍBV í 4-0 í uppbótatíma í fyrri hálfleik og segja má að stelpurnar hafi gert út um leikinn á korters kafla.
Síðari hálfleikur fór rólega af stað en Fylkir skoraði tvo mörk sem voru dæmd af vegna rangstöð en á endanum náði Fylkir að minnka muninn á 77. mínútu með marki frá �?línu Guðbjörgu Viðarsdóttur.
ÍBV hef­ur skorað fjórtán mörk í síðustu fjórum leikj­um og unnið þá alla. Stelpurnar eru nú 3. sæti deildarinnar með 13. stig.

Nýjustu fréttir

Bæjarstjórn gagnrýnir boðaðan niðurskurð til Herjólfs
ÍBV vann öruggan sigur á Stjörnunni – Sandra fór á kostum
Heimir Hallgrímsson heldur varnarnámskeið í Eyjum í desember
Vestmannaeyjabær leggur sex milljónir í hlutafjáraukningu í Eyjagöngum
Skálað og skrafað í Miðstöðinni – myndir
Eyjakonur vilja halda í við topplið Hauka
Glæsileg söngveisla þriggja kóra í Eyjum
Þoka hér en ekki þar
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.