Innanfélagsmót Sjóve um aðra helgi
Í nýjasta tölublaði Eyjafrétta er Innanfélagsmót Sjóve auglýst en mótið verður haldið laugardaginn 7. júní. Í auglýsingunni er hins vegar sagt að mótið eigi að vera 5. apríl en eins og flestir gera sér væntanlega grein fyrir, þá er sú dagsetning kolröng. Skráning í mótið er hins vegar hafin á www.sjove.is og eru félagsmenn hvattir til að taka með sér nýliða í sjóstöng.
Dagsskrá mótsins er þannig að á föstudeginum er mótssetning, dregið á báta og mótsgögn afhent klukkan 20:00 í félagsheimili Sjóve við Heiðarveg 7. Lagt verður úr höfn klukkan 7:00 á laugardagsmorgni en veiðum hætt klukkan 15 og stefnan tekin í land. Um kvöldið er svo lokahóf, matur og verðlaunaafhending.

Nýjustu fréttir

Vikan í Eyjum: Herjólfur, framkvæmdir við höfnina og fjárhagsáætlun bæjarins
Lúðrasveitin í landsliðsklassa – Kraftur, gleði og glæsilegur samhljómur
Gera ráð fyrir 610 milljóna afgangi á næsta ári
Hausttónleikar Lúðrasveitar Vestmannaeyja í myndum
Bæjarstjórn gagnrýnir boðaðan niðurskurð til Herjólfs
ÍBV vann öruggan sigur á Stjörnunni – Sandra fór á kostum
Heimir Hallgrímsson heldur varnarnámskeið í Eyjum í desember
Vestmannaeyjabær leggur sex milljónir í hlutafjáraukningu í Eyjagöngum
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.