Ísfélag - Makrílvertíð lokið og síldarvertíð tekur við
Myndin er tekin af Einari Þór Óttarssyni og ber heitið „Undir regnboganum“ og var tekin þegar Heimaey landaði á Þórshöfn á makrílvertíðinni.

Makrílvertíð félagsins gekk vel þar sem allur kvóti félagsins, 22.300 tonn, kláraðist. Fyrstu 5.400 tonnunum var landað í Vestmannaeyjum, en tæplega 17.000 tonnum var landað á starfstöð félagsins á Þórshöfn og var þar met makrílvertíð. Vel gekk að vinna afurðir úr aflanum og á starfsfólk félagsins hrós skilið fyrir að ganga vel til verka.

Öll uppsjávarskip félagsins, Sigurður VE, Heimaey VE, Álsey VE og Suðurey VE, tóku þátt í veiðunum með samvinnu sín á milli á miðunum, en mest var veitt af makrílnum í Smugunni, og einungis minni hluti aflans var veiddur í íslenskri lögsögu.

Nú er stutt á milli vertíða en Sigurður VE kom með fyrsta norsk-íslenska síldarfarminn, 1125 tonn, til Þórshafnar í gær og Heimaey VE fór frá Vestmannaeyjum á sama tíma til síldarveiða. Áhafnir Suðureyjar og Álseyjar fara nú á bolfiskveiðar á Sigurbjörgu VE og munu Heimaey og Sigurður sjá um veiðar á norsk-íslensku síldinni.

Af fésbókarsíðu Ísfélagsins.

Nýjustu fréttir

Allison Clark tryggði ÍBV jafntefli með marki í blálokin
Staða mála hjá Herjólfi
Embla Harðardóttir sleit krossband gegn FH
Rannsóknarhola Eyjaganga komin á beinu brautina á ný
Herjólfur með sjö ferðir til Landeyjahafnar í dag
Geta Eyjastúlkur haldið pressunni á Breiðablik?
Díana Dögg og Andrea spila oddaleik um þýska meistaratitilinn
Herjólfur til Þorlákshafnar
viðburðir
Sa Portret 02022026 1
27. maí 2026
08:30
Hringferð SA í Akóges-salnum
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.