Íslandsmeistararnir til Ísrael
Íslandsmeistarar ÍBV í karlahandboltanum mæta ísraelska liðinu Hapoel Ris­hon LeZi­on í 2. umferð EHF-bikarsins en dregið var í morgun. ÍBV var í efri styrkleikaflokki en ísraelska liðið hefur orðið meistari tvö ár í röð og verðugt verkefni fyrir Eyjaliðið, bæði sterkur mótherji og mjög langt ferðalag. Leikir liðanna fara fram 6. eða 7. september og 13. eða 14. september.
Kvennalið ÍBV tekur einnig þátt í Evrópukeppninni og fer einnig til Miðjarðarhafsins en þó ekki lengra en til Ítalíu því ÍBV mætir Salermo í 2. umferð EHF-bikars kvenna. Salermo varð ítalskur meistari 2010 og 2011 og má því búast við hörkurimmu. Leikirnir fara fram 18. eða 19. október og 25. eða 26. október.

Nýjustu fréttir

Veisla hjá Bjössa í 20 ár
Allir bæjarfulltrúar sameinast um kröfur til ríkisstjórnarinnar
TM mótið hefst á morgun
Afmælisdagarnir gáfu ömmunni milljónir
Koddaslagur systranna skilaði 500 þúsund til Krabbavarnar
Sjómennskan í blóðinu nýtist í tónlistinni
Grípa þarf hjálpina þegar hún býðst
Næsta skref hjá Eyjagöngum: Borinn kominn á Landeyjasand
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.