Íþróttafélög fái endurgreiddan virðisaukaskatt
Fjórir sunnlenskir Alþingismenn eru meðflutningsmenn með frumvarpi Willums �?órs �?órssonar, þingmanni Framsóknarflokksnis, um endurgreiðslu virðisaukaskatts til íþróttafélaga.
Willum �?ór mælti fyrir frumvarpi um breytingu á lögum um virðisaukaskatt á Alþingi í gær. Meðflutningsmenn hans koma allir úr Suðurkjördæmi en það eru Páll Jóhann Pálsson, Haraldur Einarsson og Silja Dögg Gunnarsdóttir úr Framsóknarflokknum og Ásmundur Friðriksson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins.
Í greinargerð frumvarpsins segir, að frumvarpið miði að því að breyta virðisaukaskattsumhverfi íþróttahreyfingarinnar. Lagt er til að íþrótta- og ungmennefélögum verði endurgreiddur allur virðisaukaskattur sem greiddur hefur verið af vinnu manna við nýbyggingu, endurbyggingu og viðhaldi við íþróttamannvirki, en einnig af þjónustu vegna hönnunar, eftirlits eða viðhalds þeirra. Frumvarpið gerir ráð fyrir að þjónusta og vörusala sem stunduð er til að afla fjár fyrir hefðbundna starfsemi íþróttafélaga verði undanþegnar virðisaukaskatti. Tímabilið í frumvarpinu er eitt ár, frá 1. janúar 2015 til 1. janúar 2016.
Á síðasta þingi var lögð fram þingsályktunartillaga um endurskoðun á virðisaukaskattsumhverfi íþróttahreyfingarinnar og stóðu sömu stjórnarþingmenn að baki henni.
Í greinargerðinni segir að sjálfboðaliðastarf hafi lengi verið grunnurinn að öflugu íþróttastarfi á Íslandi. �??Verði frumvarpið að lögum mun það stórefla allt sjálfboðaliðastarf innan íþróttahreyfingarinnar hér á landi og auðvelda íþróttafélögum alla uppbyggingu íþróttamannvirkja. Frumvarpið er í samræmi við stjórnarsáttmála ríkisstjórnarinnar um að leggja áherslu á mikilvægi íþrótta-, tómstunda- og æskulýðsmála.�??
sunnlenska.is greindi frá

Nýjustu fréttir

Páll aftur á Sprengisandi – Beint í djúpu laugina
Framtíðarsýn um réttlæti og stöðugleika
Fótboltamaðurinn Bjarki Björn Gunnarsson er íþróttamaður mánaðarins
Veðurblíðan í Eyjum í sumar á sér fáar hliðstæður
Fjölbreytt námskeið hjá Visku í haust
Myndlistargyðjan var alltaf í fyrsta sæti
Vestmannaeyjar Open 2026 í pílukasti fór fram um helgina
ÍBV tapaði á heimavelli gegn ÍA
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.