Jafntefli skilaði litlu
Eyjamenn fóru illa að ráði sínu gegn Breiðabliki í kvöld. Liðin skildu jöfn 1:1 en Eyjamenn voru mun sterkari lengst af í leiknum og hefðu átt að vinna miðað við gang mála. Brynjar Gauti Guðjónsson kom ÍBV yfir í fyrri hálfleik en Blikar jöfnuðu seint í síðari hálfleik. Fyrir leikinn voru bæði lið með 20 stig og enn í fallhættu en sigur hefði að öllum líkindum tryggt sæti í efstu deild að ári. Jafntefli gerir hins vegar lítið, bæði lið geta enn fallið þar sem lið hafa áður fallið með 21 stig í efstu deild en ekkert lið hefur þó fallið með 22 stig. Samkvæmt því ætti að vera nóg fyrir ÍBV að ná í eitt stig í viðbót í þeim þremur leikjum sem eftir eru. ÍBV sækir KR heim í næstu umferð, tekur svo á móti Keflavík og sækir að lokum Fjölni heim.

Nýjustu fréttir

Vantar pláss á hafnarsvæðinu – kanna framtíð Blátinds
Andri og Elís Þór áfram í milliriðil með u-20
Eyjamenn töpuðu gegn KR á Meistaravöllum
Sóley og Örlygur Helgi eru klúbbmeistarar GV 2026
Rannsóknum fyrir Eyjagöng miðar vel áfram
Þóra Guðný og Sveinn flutt í nýja húsið
ÍBV mætir KR á Meistaravöllum í kvöld
Minnisvarði um Þór gæti fengið nýjan stað
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.