Járnplötudrífa norður Hlíðarveg
Sunnanstormurinn sem náði hámarki við suðvestanvert landið í gærkvöldi olli tjóni víða í Eyjum, einna verst var ástandið í norðanverðum bænum. Járnplötur fuku af efnalauginni Straumi og Eyjabergshúsinu, sem er fyrir neðan fiskvinnsluna Godthaab í Nöf. Gripið var til þess ráðs að loka umferð inn að Friðarhöfn á áttunda tímanum í gærkvöldi vegna hættu frá þakplötum á flugi.
�??Járnplötudrífa norður Hlíðarveg,�?? var skrifaði í dagbók lögreglunnar í gær. Adolf �?órsson, formaður Björgunarfélags Vestmannaeyja, tekur undir þessa lýsingu lögreglunnar og segir í samtali við Eyjafréttir.is að björgunarsveitarmenn hafi ekki fengið neitt við ráðið þegar komið var að Eyjabergi. Í samráði við lögreglu hafi verið lokað fyrir umferð frá prentsmiðjunni Eyrúnu á Hlíðarvegi og frá heildsölunni á Strandveginum niður að hafnarsvæðinu.
Björgunarsveitin var fyrst kölluð að húsi á Túngötu rétt fyrir hádegi í gær þar sem gler í gluggum brotnaði vegna veðurofsans. �?egar vindátt snérist til suðvesturs kom hvellurinn sem feykti þakplötum víða ásamt því sem grindverk og sólpallur gáfu eftir. �?á tókst auglýsingaskilti við Týsvöllinn á loft en það kastaðist yfir Brekkugötuna, fór á kyrrstæðan bíl og staðnæmdist í garði á Illugagötu þar sem það var fest niður.
�??Veðrið var mjög grimmt,�?? segir Adolf �?órsson, formaður björgunarfélagsins, en bætir við að það hafi alls ekki verið jafn slæmt og veður sem geisaði í febrúar árið 1991. Sá stormur hefur verið nefndur í fjölmiðlum að undanförnu til samanburðar við lægðina sem er enn að ganga yfir landið, þó vind hafi lægt verulega nú í Vestmannaeyjum.
-SJ

Nýjustu fréttir

Viðreisn vill raunverulegar forvarnir gegn nikótínneyslu ungmenna
Brottför seinni ferðar flýtt vegna versnandi veðurs
Níu útgefendur fá styrki til fjölmiðlunar í héraði
Óveðrið í myndum
Uppvakningafaraldur skellur á Íslandi í nýju hlaðvarpi úr Eyjum
Þakplata farin að losna – hviður náðu 51 m/s á Stórhöfða
Skólahaldi seinkað til klukkan 9 vegna veðurs
Uppfært: Veðurofsi í Eyjum – 50 m/s hviður á Stórhöfða
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.