Jónsmessuhátíð á morgun
Jónsmessuhátíð í Eyjum verður haldin í annað sinn, laugardaginn 27. Júní. Dagskráin hefst klukkan fjögur og stendur fram að miðnætti í miðbæ Vestmannaeyja.
Boðið verður upp á sérstaka barnadagskrá og kvölddagskrá. Ýmis skemmtiatriði verða og þar má nefna dans, söng, hoppukastala og margt fleira. Hvor dagskrá fyrir sig byggir á hæfileikum Eyjamanna, -kvenna og -barna sem og gesta. Ýmsar fjáraflanir verða á staðnum og má þar nefna Fimleikafélagið Rán sem mun selja flos og Féló mun selja brjóstsykur. Verslanir og veitingastaðir munu bjóða upp á sérstök tilboð í tengslum við hátíðina.
Lára Dögg forsprakki hátíðarinnar segir að hátíðin verði með sama sniði og í fyrra en aðeins hafa verið gerðar smávægilegar breytingar. �??Í fyrra vissum við ekki ekki við hverju við áttum að búast, við bjuggumst til dæmis aldrei við þessum fjölda og ég held að það verði allir betur undirbúnir í ár. �?að eru einhverjar breytingar, við færðum til dæmis Jónsmessuhlaupið framar í dagskrána svo að hlauparar gætu tekið virkari þátt um kvöldið. Í fyrra var Jónsmessuhlaupið um miðnætti en núna sér Hressó um það en tvær vegalengdir eru í boði, þrír og fimm kílómetrar. Starfsfólk Hressó tekur niður skráningar en það er tímataka í fimm kílómetra hlaupinu. Jónsmessuhlaup Hressó hefst klukkan 18.30 eða strax eftir Barnadagskrána. �?að kostar ekkert í hlaupið en við hvetjum hlaupara og aðra að styrkja söfnun barna Fanneyjar Bjarkar Ásbjörnsdóttur en þau eru að safna fyrir lyfjum fyrir móður sína. Við verðum einnig með betra hljómkerfi heldur en í fyrra. Í ár verður ekki andlitsmálun en allir ættu að geta fundið sér eitthvað við sitt hæfi.�??
Nánar var spjallað við Láru Dögg í nýjasta tölublaði Eyjafrétta

Nýjustu fréttir

Vinnslustöðin á erlendum vettvangi
„Vestmannaeyjar eru til fyrirmyndar“
Hljómey og Vestmannaeyjabær framlengja samstarfið
Loðnuráðgjöf lækkar úr 358 þúsund tonnum í tæp 106 þúsund
Óvenjudjúp lægð í spákortum – gul viðvörun á Suðurlandi
Þrjár uppsagnir hjá Vestmannaeyjabæ úrskurðaðar ólögmætar
Skráning hafin fyrir hrekkjavökuna
Laxey meðal þátttakenda á Lagarlífi í Hörpu
viðburðir
Atvinna
13. október 2026
17:15
Íbúaþing um atvinnustefnu í Eldheimum
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.