Jötunn Vélar stofna vélasölufyrirtæki í Danmörku.

Stofnun Total Maskiner er liður í útrás Jötunn Véla inn á erlenda markaði með að markmiði að efla fyrirtækið og stækka til að skapa tækifæri fyrir hagstæðari innkaup og öflugri þjónustu fyrir íslenska bændur.

Sölusvæði Total Maskiner er á Sjálandi í Danmörku. Áætlanir eigenda gera ráð fyrir að velta Total Maskiner verði orðin um 1,4 milljarður íslenskra króna eftir 2 ár.

Svenningsens er 145 ára fjölskyldufyrirtæki sem sérhæfir sig í sölu á vélum fyrir sveitarfélög og græn svæði s.s. golfvelli. Höfuðstöðvar Svenningsens eru í Kaupmannahöfn en fyrirtækið er einnig með útibú í Noregi og Svíþjóð.

Jötunn Vélar er eitt öflugasta fyrirtæki landsins í sölu véla og tækja fyrir landbúnað og var velta fyrirtækisins árið 2006 tæpur 1,5 milljarðar. Helstu vörumerki Jötunn Véla eru Massey Ferguson og Valtra dráttarvélar, Vicon og Pöttinger jarð og heyvinnutæki, Schaffer liðstýrðar mokstursvélar og Mullerup fóðrunarkerfi.

Höfuðstöðvar Jötunn Véla eru á Selfossi en markaðssvæði fyrirtækisins er allt landið. Starfsmenn Jötunn Véla eru 14.

Nýjustu fréttir

Ísfélagið komið með tvo þriðju af loðnukvótanum
„Loðna með suðurströndinni og henni fylgir mikill fjöldi hvala”
5. bekkur kynnti sér loðnuna í uppsjávarvinnslu VSV
Kallar eftir tafarlausum úrbótum
Kokkurinn heldur áhöfninni gangandi  
Þegar þú lend­ir í svona ferðu að hugsa hlut­ina allt öðru­vísi
Álfsnes úr leik vegna bilunar
Trausti opnar kosningaskrifstofu í gamla TM Húsinu
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.