Kári Kristján sár út í ÍBV
Eyjamaðurinn hrausti, Kári Kristján Kristjánsson sem hefur leikið sem atvinnumaður síðustu ár í handbolta, segist svekktur út í ÍBV. Kári segir í viðtali á Vísi.is að félagið hafi komið illa fram við sig en samningaviðræður um að Kári myndi ganga í raðir ÍBV höfðu verið í gangi síðustu vikur. �??Viðræðurnar við ÍBV voru komnar á það stig að flugstjórinn var búinn að tilkynna að vélinni yrði lent eftir korter. �?á kom stopp í viðræðurnar sem mér fannst furðulegt, enda voru menn búnir að sættast á stoðir samningsins og í raun bara fínpússning eftir. �?g skildi ekki hvað var eiginlega í gangi og hafði því samband við þá aftur. �?á er mér tilkynnt að þetta gangi ekki upp,�?? segir Kári í samtali við Vísi.
Kári greindist fyrir skömmu með æxli í baki í annað sinn en fékk þau góðu tíðindi að æxlið væri góðkynja og að ekki þyrfti að skera það burt. �??Stjórnin vissi algjörlega um heilsufar mitt og samningurinn átti þá ekki að taka gildi fyrr en ég væri búinn að ná mér góðum af veikindunum. Fyrir mér var þetta allt klárt og ég farinn að undirbúa flutning til Eyja. �?á virðist vera einhver misskilningur innan stjórnar félagsins þar sem menn virðast ekki kannast við allar upplýsingar málsins. �?að kom flatt upp á mig því ég er með öll okkar samskipti á tölvupósti. Við vorum búnir að sættast á tölur og bara smáatriði eftir. �?etta kom því algjörlega flatt upp á mig þegar þeir segjast ekki geta gert þetta.�??
Eyjamaðurinn er mjög undrandi og svekktur yfir vinnubrögðum handknattleiksdeildarinnar. �??�?g er mjög sár og svekktur út í uppeldisfélag mitt og átta mig eiginlega ekki á þessum vinnubrögðum. �?g var mjög spenntur fyrir því að koma heim í mitt félag og taka þátt í þessum skemmtilega uppgangi sem er þar í gangi. Mér finnst ég hafa verið svikinn af uppeldisfélaginu og er svekktur með mína menn.�??

Nýjustu fréttir

Dýpkun í Landeyjahöfn sett á bið vegna mikillar siglingaumferðar
Sjómannakaffið – ÍBV-stelpurnar tóku við keflinu
Landað í Grindavík og í Eyjum
Þarf vinnuskóli að vera vesen?
„Við erum að tala um 18 íbúðir, ekki eitt einbýlishús“
Veisla hjá Bjössa í 20 ár
Allir bæjarfulltrúar sameinast um kröfur til ríkisstjórnarinnar
TM mótið hefst á morgun
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.