Kári Kristján semur við ÍBV
Frábærar fréttir bárust úr herbúðum ÍBV í dag þegar staðfest var að Kári Kristján Kristjánsson hafi skrifað undir samning við félagið.
Samið var til fjögurra ára og fór undirskriftin fram hjá Samhentum, sem er einn aðalstyrktaraðili handknattleiksdeildar ÍBV.
Kári Kristján er 30 ára, fæddur og uppalinn í Vestmannaeyjum. Undanfarin ár hefur hann leikið erlendis í atvinnumannadeildum og nú síðast fyrir Valsmenn á síðasta keppnistímabili. Kári var hársbreidd frá því að ganga til liðs við Eyjamenn fyrir síðustu leiktíð en nú er hann kominn í liðið.
Kári hefur leikið marga landsleiki fyrir Íslands hönd en hann á 97 slíka, honum tókst að skora 112 mörk í þeim.
ÍBV sendi frá sér fréttatilkynningu en hana er hægt að sjá hér að neðan.
“Handknattleiksráð ÍBV hefur gert fjögurra ára samning við Kára Kristján Kristjánsson.

Kári Kristján er 30 ára, fæddur og uppalinn í Vestmannaeyjum og steig sín fyrstu handknattleiksspor á dúknum í gamla salnum í íþróttamiðstöðinni við Brimhólalaut.

Kári Kristján var rétt 16 ára er hann spilaði sinn fyrsta meistaraflokksleik fyrir ÍBV haustið 2000. Alls spilaði hann 115 leiki fyrir ÍBV og skoraði í þeim 184 mörk áður en hann söðlaði um og gekk til liðs við Hauka er hann hóf nám við íþróttafræðiskor Háskólans í Reykjavík. Kári Kristján er margreyndur atvinnmaður frá bæði �?ýskalandi og Danmörku auk þess sem hann hefur verið fastamaður í landsliði Íslands mörg undanfarin ár.

Auk þess að spila handknattleik fyrir ÍBV mun Kári Kristján þjálfa fyrir félagið og koma að starfi íþróttaakademíu ÍBV og Vestmannaeyjabæjar og vera þar hluti af þeim góða hópi sem mótar og þjálfar framtíðarleikmenn félagsins.

ÍBV býður Kára Kristján velkominn í hópinn og alla fjölskylduna aftur heim á Eyjuna fögru.

ÁFRAM ÍBV, alltaf og alls staðar.“

Nýjustu fréttir

SFS: Ekki öll nótt úti um stærri loðnukvóta
Bæjarstjórn fundar í dag – bein útsending
Sjö ferðir Herjólfs falla niður vegna viðhalds
Herjólfur til Landeyjahafnar í dag og Þorlákshafnar á morgun
Þrjár ólögmætar uppsagnir kalla á skýr svör
Vinnslustöðin á erlendum vettvangi
„Vestmannaeyjar eru til fyrirmyndar“
Hljómey og Vestmannaeyjabær framlengja samstarfið
viðburðir
Atvinna
13. október 2026
17:15
Íbúaþing um atvinnustefnu í Eldheimum
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.