Kemur fyrsti deildarsigurinn í dag?
ÍBV tekur í dag á móti Val í Pepsídeild karla en leikurinn fer fram á Hásteinsvelli og hefst klukkan 17:00. Eyjamenn hafa farið afleitlega af stað í deildinni, eru neðstir með aðeins tvö stig eftir sex leiki og hafa m.a. tapað öllum þremur heimaleikjum sínum í sumar í deildinni. Fjórði heimaleikurinn er semsagt í dag en Eyjamenn hafa aðeins verið að rétta úr kútnum í síðustu tveimur leikjum, unnu 1. deildarlið Hauka í bikarnum og gerðu svo 1:1 jafntefli gegn �?ór norður á Akureyri. En betur má ef duga skal og ef liðið ætlar sér að halda sig frá fallsvæðinu í sumar, þá má liðið ekki við því að tapa fleiri heimaleikjum.
Magnús Gylfson, sem tvívegis hefur þjálfað ÍBV, hefur farið vel af stað með Valsmenn en Valur er í fjórða sæti með 11 stig, þrjá sigra, tvö jafntefli og aðeins eitt tap. Leikmenn ÍBV verða því að sýna sparihliðarnar í dag, ætli þeir sér að ná í sinn fyrsta sigur í deildinni þetta sumarið. Dean Martin, aðstoðarþjálfari og leikmaður ÍBV verður ekki með í dag þar sem hann fékk að líta rauða spjaldið í leiknum gegn �?ór og munar um minna, enda hefur Dean verið einn af skárri leikmönnum liðsins.

Nýjustu fréttir

Vikan í Eyjum: Herjólfur, framkvæmdir við höfnina og fjárhagsáætlun bæjarins
Lúðrasveitin í landsliðsklassa – Kraftur, gleði og glæsilegur samhljómur
Gera ráð fyrir 610 milljóna afgangi á næsta ári
Hausttónleikar Lúðrasveitar Vestmannaeyja í myndum
Bæjarstjórn gagnrýnir boðaðan niðurskurð til Herjólfs
ÍBV vann öruggan sigur á Stjörnunni – Sandra fór á kostum
Heimir Hallgrímsson heldur varnarnámskeið í Eyjum í desember
Vestmannaeyjabær leggur sex milljónir í hlutafjáraukningu í Eyjagöngum
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.