KFS er nánast öruggt með sæti í úrslitum 4. deildar eftir 2:5 sigur á Mídas í gær. Leikurinn fór fram á Framvellinum í �?lfarsárdal. Gauti �?orvarðarson kom KFS yfir undir lok fyrri hálfleiks en heimamenn jöfnuðu metin skömmu áður en flautað var til leikhlés. Valur Smári Heimisson kom KFS hins vegar aftur yfir í upphafi síðari hálfleiks áður en Gauti bætti þriðja markinu við stuttu síðar. Guðmundur Geir Jónsson skoraði fjórða mark KFS áður en Gauti gulltryggði sigurinn með fimmta markinu. Mídas náði svo að laga stöðuna örlítið í blálokin og lokatölur því 2:5.
KFS er sem fyrr á toppi B-riðils með 31 stig eftir 10 sigra og 1 jafntefli í 11 leikjum. Vængir Júpíters er í öðru sæti með 21 stig og Augnablik er í þriðja sæti með 20 stig. Bæði lið eiga eftir fjóra leiki og geta því komist upp fyrir KFS, svo lengi sem Eyjamenn tækju upp á því að tapa síðustu þremur leikjum sínum. �?að verður hins vegar að teljast mjög ólíklegt, enda KFS ekki tapað leik í riðlakeppninni. Tvö efstu lið riðilsins komast í úrslit en KFS á eftir að spila bæði við Vængi Júpíters og Augnablik. �?á eru tveir af þremur síðustu leikjum KFS í riðlakeppninni heimaleikir.