Knattspyrnusumarið gert upp
Lokahóf knattspyrnufólks ÍBV fór fram í Höllinni í gærkvöldi með bravor. Sigursveinn �?órðarson, formaður ÍBV fór yfir knattspyrnusumarið þar sem skiptist á skin og skúrir. Páll Magnússon var röggsamur veislustjóri kvöldsins, hann gat þess að um klukkan fjögur í gær, þegar leik ÍBV og Fjölnis lauk, hafi hann verið dapur, en eftir að hafa hlustað á Sigursvein fara yfir knattspyrnutímabilið, hafi lundin lést, því augljóslega hefði margt jákvætt verið að gerast síðasta sumar.
Glæsilegt hlaðborð var framreitt af Einsa kalda og hans fólki og síðan fóru fram ýmsar viðurkenningar og heiðranir. Eyjafréttir munu gera hófinu góð skil í blaðinu sem kemur út næsta miðvikudag.
Sá mæti maður, Sighvatur Jónsson sá um tæknimálin á og hafði útbúið skemmtilegt myndband sem sýnt var á lokahófinu þar sem farið er yfir knattspyrnusumarið í gamni og alvöru eyjafrettir fengu góðfúslegt leyfi hans til að birta það.

Nýjustu fréttir

„Fjörutíu árum síðar – með þakklæti til FÍV“
Þrír reynslumiklir sjómenn heiðraðir á Sjómannadaginn
Kristín Klara spilaði í Sundsvall með u-19 ára landsliðinu
Æskudraumur Díönu Daggar rættist
Hugrekki er oft bara að halda áfram
Skólanum slitið á Stakkó
Hrafnhildur Hallgrímsdóttir með 9,0 í meðaleinkunn
Íris ráðin bæjarstjóri til næstu fjögurra ára
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.