Konur eru konum bestar -Sjóvá Kvennahlaup ÍSÍ í dag
Einn stærsti almenningsíþróttaviðburður Íslands á hverju ári, Sjóvá Kvennahlaup ÍSÍ, fer fram í 26. skipti í dag, þann 13. júní. Hlaupið verður um allt land og víða um heim. Konur á öllum aldri koma saman og taka þátt, sumar hlaupa og aðrar ganga. Íþrótta- og �?lympíusamband Íslands vill hvetja konur á öllum aldri áfram í heilbrigðum og skynsamlegum lífsstíl, að setja sér markmið og framfylgja þeim.
Í Vestmannaeyjum verður hlaupið frá Íþróttamiðstöðinni og hefst hlaupið klukkan tólf á hádegi. Vegalengdir í boði eru 2,2 km, 3,5 km og og 7 km. Forsala í Active. Markmið Kvennahlaupsins hefur frá upphafi verið að vekja áhuga kvenna á reglulegri hreyfingu. Hver kona tekur þátt á sínum forsendum og lögð er áhersla á að hver kona komi í mark á sínum hraða og með bros á vör.
Ekki þarf að skrá sig sérstaklega í hlaupið heldur bara að mæta á hlaupastað og kaupa sér bol. �?áttökugjald er 1000 kr. fyrir 12 ára og yngri og 1500 kr. fyrir 13 ára og eldri.
�?að sem er svo skemmtielgt við Kvennahlaupið er að þar koma saman konur á öllum aldri. Mjög algengt er að margir ættliðir, vinkonur eða systur fari saman í hlaupið og geri sér jafnvel glaðan dag í tilefni dagsins.
�?ldrunarheimili víðsvegar um land hafa boðið sínu heimilisfólki að taka þátt í Kvennahlaupinu í þessari viku. Mikil stemming hefur myndast hjá heimilisfólki og hafa allir verið virkjaðir. Karlmennirnir hafa tekið á móti konunum og veitt þeim verðlaunapeninga. Sumstaðar er boðið upp á harmonikkuleik.
Fjölmennustu hlaupin eru í Garðabæ og er hlaupið þar kl. 14:00, Mosfellsbæ, hlaupið er þar kl. 11:00, Akureyri, hlaupið er frá Sólúrinu í Kjarnaskógi kl. 11:00 en það er ný staðsetning.
Hér er hægt að kynna sér hlaupastaði og tímasetningar www.kvennahlaup.is
Aðalsamstarfsaðili Kvennahlaups ÍSÍ er Sjóvá. Aðrir samstarfsaðilar eru Nivea, �?lgerðin og Morgunblaðið.

Nýjustu fréttir

Þrjár ólögmætar uppsagnir kalla á skýr svör
Vinnslustöðin á erlendum vettvangi
„Vestmannaeyjar eru til fyrirmyndar“
Hljómey og Vestmannaeyjabær framlengja samstarfið
Loðnuráðgjöf lækkar úr 358 þúsund tonnum í tæp 106 þúsund
Óvenjudjúp lægð í spákortum – gul viðvörun á Suðurlandi
Þrjár uppsagnir hjá Vestmannaeyjabæ úrskurðaðar ólögmætar
Skráning hafin fyrir hrekkjavökuna
viðburðir
Atvinna
13. október 2026
17:15
Íbúaþing um atvinnustefnu í Eldheimum
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.