Krakkarnir fræðast um loðnu
born_lodna_vsv_is_24_c
Kátir krakkar í fimmta bekk stúdera loðnu. Ljósmynd/vsv.is

Fimmtubekkingar í Grunnskóla Vestmannaeyja sóttu Vinnslustöðina heim í byrjun vikunnar til að fræðast um loðnu, bæði munnlega og verklega.

Þetta er árleg heimsókn af sama tilefni enda loðnan bekkjarfiskur fimmtubekkinga og Vinnslustöðin kjörin vettvangur til að gaumgæfa þennan verðmæta en duttlungafulla fisk á alla vegu, sama hvort loðna veiðist það árið eður ei.

Þannig er nú ástatt nú um stundir að loðnan veiðist ekki en Vinnslustöð sá við dyntum hennar  með því að eiga í frystigeymslu nokkrar öskjur frá því í fyrra handa grunnskólagestunum ungu til að rannsaka.

Benoný Þórisson, framleiðslustjóri fiskvinnslu VSV, og Sindri Viðarsson, sviðsstjóri uppsjávarsviðs, tóku á móti gestunum, fræddu þá og leiðbeindu þeim við rannsóknir. Krakkarnir urðu margs vísari og fengu í lok safa & súkkulaði í kaffistofu starfsmanna VSV.

Vinnslustöðin þakkar fyrir komuna, segir í umfjöllun á vefsíðu fyrirtækisins. Fleiri myndir frá heimsókninni má sjá hér.

Nýjustu fréttir

Emil og félagar í U17 áfram í næstu umferð undankeppni EM 2027
Íris hvetur þingmenn til að skipuleggja ferðina út frá „löngu leiðinni“
Göngustígur kominn að Sjónarhorni Flakkarans
Herjólfur siglir til Þorlákshafnar síðdegis
Dýpkuðu 32 þúsund rúmmetra við Landeyjahöfn
Logn og bros á Stórhöfða
Slökkviliðsstjóri söðlar um eftir tíu ár í starfi
Útlit fyrir breyttar siglingar Herjólfs næstu daga
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.