Krefjandi fyrsti túr í skipstjórastóli
Valtyr Bjarnason Nov 2024 EV
Valtýr Bjarnason í brúnni á Vestmannaey. Ljósmynd/svn.is

Vestmannaey VE og Bergur VE lönduðu báðir fullfermi í Eyjum í gær. Skipstjóri á Vestmannaey í veiðiferðinni var Valtýr Bjarnason en þetta var hans fyrsti túr í skipstjórastólnum.

Valtýr er Eyjamaður og hefur verið annar stýrimaður á Vestmannaey undanfarin ár og leyst af sem fyrsti stýrimaður en nú kom að því að hann settist í stól skipstjórans. Rætt er við Valtý á vefsíðu Síldarvinnslunnar. Þar er hann spurður hvernig túrinn hafi gengið og hvort áhöfnin hafi ekki tekið honum vel í nýju hlutverki.

„Jú, mér var sko vel tekið. Það gekk í reyndinni allt smurt enda frábærir strákar hér um borð, sannkallaðir eðalpeyjar. Þá var ég í símasambandi við Birgi Þór skipstjóra og Egil Guðna stýrimann og þeir reyndust vel eins og alltaf. Það má segja að þeir félagar séu frábærir kennarar. Í veiðiferðinni var komið víða við og segja má að hún hafi verið bölvað hark enda leiðindaveður og sums staðar heldur lítið að hafa þó úr rættist að lokum. Við byrjuðum á Glettinganesflakinu en svo brast á norðanátt og við þurftum að flýja þaðan. Leiðin lá í Breiðamerkurdýpið, þaðan á Ingólfshöfðann og síðan aftur í Breiðamerkurdýpið. Haldið var á Öræfagrunn og þar fengum við ufsa. Síðan var ein nótt tekin í Skeiðarárdýpinu og að því loknu tekin tvö góð hol í Reynisdýpi. Loks var klárað á Pétursey og Vík. Eins og sést á þessu var þetta heldur erfiður fyrsti túr hjá mér sem skipstjóri en þetta hafðist. Aflinn var blandaður, mest af ufsa en síðan einnig þorskur og ýsa. Það var virkilega gleðilegt að ná þessum ufsa enda hefur hann verið okkur erfiður lengi,” segir Valtýr í samtali við vef Síldarvinnslunnar.

Bölvaður óveðurstúr

Jón Valgeirsson, skipstjóri á Bergi, tók undir með Valtý þegar hann lýsti veiðiferðinni. „Þetta var túr sem einkenndist af leiðindaveðri og voru menn á sífelldum flótta undan því. Við byrjuðum á Glettingi og síðan var farið suður eftir og veitt í Breiðamerkurdýpi, á Öræfagrunni og loks í Reynisdýpinu. Það bjargaði algjörlega túrnum að góður ufsaafli fékkst á Öræfagrunni og í Reynisdýpi. Ufsinn er góður millifiskur, ekki af stærstu gerð. Þessi túr var semsagt bölvaður óveðurstúr. Norðanáttin er slæm fyrir austan landið en mun skárri úti fyrir suðurströndinni þar sem er skjól af landinu,” segir Jón.

Bæði Jón og Valtýr gera ráð fyrir að haldið verði til veiða á Austfjarðamið þegar skipin láta úr höfn á laugardag.

Nýjustu fréttir

Karlar hvattir til að sýna handverk
Guðbrandur Einarsson segir af sér þingmennsku
Mikill áhugi á Eyjagöngum
Saltfisksala hjá meistaraflokkum ÍBV
ÍBV með mikilvægan sigur á ÍR
Kveikjum neistann: Jákvæðar vísbendingar
Hvattning til Eyjamanna
Heilsuefling starfsfólks fær aukið vægi

Góð ráð fyrir siglingu

Sjóveiki

Hvað er sjóveiki?

Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.

Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.

Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.

Góð ráð til að hindra sjóveiki:

  • Góð hvíld daginn fyrir brottför. Að fara seint að sofa og snemma um borð í bát fer ekki vel saman ef fólk er hætt við sjóveiki.
  • Forðist áfenga drykki daginn fyrir brottför
  • Forðist djúpsteiktan, brasaðan eða saltan mat daginn fyrir siglingu.
  • Borðið góðan morgunverð. Borðið gjarnan hvítt brauð, hafragraut og ávexti þó ekki sítrus ávexti.
  • Forðist mikið koffein. Mikið kaffi er ekki það sem maganum líkar fyrir sjóferð.
  • Hafðu mat með þér á sjó. Gott er að hafa samlokur með kjúklingi eða kalkún. Kjötið er fitusnautt og brauðið er róandi í maga. Hafðu endilega eitthvað til að grípa í sem er létt í maga. Bananar eru mjög góðir til að narta í ef þú finnur fyrir ógleði en einnig er gott að hafa létt kex eða annað sem er ekki salt eða fitumikið.
  • Drekkið vel af vatni en einnig er gott er að drekka kóla drykki eða engiferöl í sjóferðinni

Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.

  • Koffínátín – fæst án lyfseðils
  • Postafen – fæst án lyfseðils
  • Scopolamin plástur – lyfseðilsskyltEinnig má fá armbönd gegn ferðaveiki sem sumir telja að hjálpi.

Önnur ráð:

  • Engifer er jurt sem nýlega hefur fengið aukna athygli vegna þess að því er haldið fram að hún geti slegið á ógleði sem fylgir sjóveiki. Til forna tuggðu kínverskir sjómenn engiferrót til að draga úr sjóveiki. Flest lyf sem virka á ógleði verka á heilann en engifer virkar aðeins á magann. Ráðlagt er að taka 1000 mg. hylki hálftíma fyrir brottför. Einnig má taka eitt eða tvö 500 mg. hylki sem eru til viðbótar á ferðalaginu. Ekki er ráðlagt að drekka coke með engifertöflum.
  • Piparminta og te eru einnig gömul húsráð við ferðaveiki.
  • Sumum finnst betra að taka sýrujafnandi töflur, Alminox eða slíkt áður en þú heldur á sjó og þá er gott að hafa box með út á sjó.

Hvar í skipinu er best að vera o.fl.

  • Minna finnst fyrir hreyfingu og veltingi ef maður er staddur næst miðju bátsins.
  • Mörgum finnst gott að vera í kulda, t.d.að vera úti á dekki og láta vindinn leika um sig.
  • Matarlykt fer illa í þá sem hætt er við sjóveiki og einnig pústið frá bátnum.

Þungun:

Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.