Kveikjum neistann fékk sérstaka viðurkenningu
Verkefnið þykir öflugur stuðningur við íslenska tungu

Ari Eldjárn, uppistandari með meiru hlaut verðlaun Jónasar Hallgrímssonar sem afhent voru á degi íslenskrar tungu, 16. nóvember sl. Sérstaka viðurkenningu fyrir stuðning við íslenska tungu hlutu aðstandendur og þátttakendur í þróunarverkefninu Kveikjum neistann við Grunnskólann í Vestmannaeyjum. 

Lilja Alfreðsdóttir, menningar- og viðskiptaráðherra, afhenti verðlaunin og við þeim tóku fyrir hönd GRV og Vestmannaeyjabæjar, Anna Rós Hallgrímsdóttir skólastjóri og Páll Magnússon forseti bæjarstjórnar. Kynnir var Jakob Birgisson grínisti. GDRN og Vignir Snær fluttu lag og texta úr Málæði – íslenskuverkefni grunnskóla og Arnaldur Indriðason rithöfundur las úr bók sinni, Ferðalokum, sem byggir á ævi Jónasar Hallgrímssonar. 

Um verkefnið segir dómnefnd að síðan því var hleypt af stokkunum árið 2021 hafi það skilað eftirtektarverðum árangri bæði hvað varðar bætta líðan nemenda en líka færni í lestri. Viðurkenningin var afhent á degi íslenskar tungu sem haldinn er hátíðlegur á fæðingardegi Jónasar Hallgrímssonar, 16. nóvember ár hvert.  

Stór og merkileg viðurkenning 

Kveikjum neistann í Vestmannaeyjum hefur litla umfjöllun fengið þrátt fyrir ótrúlegan árangur nemenda miðað við það sem almennt gerist á Íslandi. Verkefnið er til tíu ára og er stutt af Vestmannaeyjabæ, menntamálaráðuneytinu, Háskóla Íslands og Samtökum atvinnulífsins. Einn af áhugaverðustu þáttum verkefnisins er hvernig það samþættir áherslur í lestri, stærðfræði, náttúrufræði, hreyfingu og áhugahvöt. Lykillinn að góðum árangri nemenda í lestri þakka aðstandendur reglulegu stöðumati, eftirfylgni, markvissri þjálfun og áskorunum miðað við færni. 

„Þetta er mjög stór og merkileg viðurkenning og ekki á hverjum degi sem skóli hér fær svona flott verðlaun. Þetta hefur tekist með samvinnu skólans og bæjarstjórnar og ekki má gleyma samstilltu átaki nemenda og góðum kennurum,“ sagði Anna Rós við Eyjafréttir. „Vert er að nefna gríðarlega mikilvægt hlutverk foreldra í námi barna sinna og góðu samstarfi heimila og skóla. Foreldrar eiga sinn þátt í þessum frábæra árangri. Við erum ofboðslega stolt af þessari viðurkenningu. Hún hvetur okkur til að halda áfram því öfluga starfi sem á sér stað í skólanum okkar. Til hamingju við,“ sagði Anna Rós. 

Einstakur árangur 

Og tölurnar tala sínu máli. Allir nemendur í fyrsta bekk sem hófu nám haustið 2021 gátu lesið orð í lok skólaárs en 73% í samanburðarhópi sem í voru 365 norsk börn. Árið eftir í öðrum bekk, vorið 2023 gátu 83% þeirra lesið texta sem hæfði aldri þeirra á móti 52% í samanburðarhópi 498 barna í 20 skólum á Íslandi. Í þriðja bekk, 2023 til 2024 gat 91% þeirra lesið texta sem hæfði aldri þeirra en 64% í í samanburðarhópi 401 barns í 15 skólum á Íslandi.  

Og tölurnar tala sínu máli:

  • Allir nemendur í fyrsta bekk sem hófu nám haustið 2021 gátu lesið orð í lok skólaárs en 73% í samanburðarhópi sem í voru 365 norsk börn.
  • Árið eftir í öðrum bekk, vorið 2023 gátu 83% þeirra lesið texta sem hæfði aldri þeirra á móti 52% í samanburðarhópi 498 barna í 20 skólum á Íslandi.
  • Í þriðja bekk, 2023 til 2024 gat 91% þeirra lesið texta sem hæfði aldri þeirra en 64% í í samanburðarhópi 401 barns í 15 skólum á Íslandi.

Nýjustu fréttir

Álfsnes úr leik vegna bilunar
Trausti opnar kosningaskrifstofu í gamla TM Húsinu
Strangar kröfur í útboði heilsuræktar vekja ágreining í bæjarstjórn
Davíð Oddsson fallinn frá
ÍBV strákarnir urðu einnig Powerade bikarmeistarar í 3. flokki
Dýpið mælt í Landeyjahöfn
ÍBV Powerade bikarmeistari í 3. flokki kvenna
Mars heilsar með frosti

Góð ráð fyrir siglingu

Sjóveiki

Hvað er sjóveiki?

Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.

Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.

Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.

Góð ráð til að hindra sjóveiki:

  • Góð hvíld daginn fyrir brottför. Að fara seint að sofa og snemma um borð í bát fer ekki vel saman ef fólk er hætt við sjóveiki.
  • Forðist áfenga drykki daginn fyrir brottför
  • Forðist djúpsteiktan, brasaðan eða saltan mat daginn fyrir siglingu.
  • Borðið góðan morgunverð. Borðið gjarnan hvítt brauð, hafragraut og ávexti þó ekki sítrus ávexti.
  • Forðist mikið koffein. Mikið kaffi er ekki það sem maganum líkar fyrir sjóferð.
  • Hafðu mat með þér á sjó. Gott er að hafa samlokur með kjúklingi eða kalkún. Kjötið er fitusnautt og brauðið er róandi í maga. Hafðu endilega eitthvað til að grípa í sem er létt í maga. Bananar eru mjög góðir til að narta í ef þú finnur fyrir ógleði en einnig er gott að hafa létt kex eða annað sem er ekki salt eða fitumikið.
  • Drekkið vel af vatni en einnig er gott er að drekka kóla drykki eða engiferöl í sjóferðinni

Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.

  • Koffínátín – fæst án lyfseðils
  • Postafen – fæst án lyfseðils
  • Scopolamin plástur – lyfseðilsskyltEinnig má fá armbönd gegn ferðaveiki sem sumir telja að hjálpi.

Önnur ráð:

  • Engifer er jurt sem nýlega hefur fengið aukna athygli vegna þess að því er haldið fram að hún geti slegið á ógleði sem fylgir sjóveiki. Til forna tuggðu kínverskir sjómenn engiferrót til að draga úr sjóveiki. Flest lyf sem virka á ógleði verka á heilann en engifer virkar aðeins á magann. Ráðlagt er að taka 1000 mg. hylki hálftíma fyrir brottför. Einnig má taka eitt eða tvö 500 mg. hylki sem eru til viðbótar á ferðalaginu. Ekki er ráðlagt að drekka coke með engifertöflum.
  • Piparminta og te eru einnig gömul húsráð við ferðaveiki.
  • Sumum finnst betra að taka sýrujafnandi töflur, Alminox eða slíkt áður en þú heldur á sjó og þá er gott að hafa box með út á sjó.

Hvar í skipinu er best að vera o.fl.

  • Minna finnst fyrir hreyfingu og veltingi ef maður er staddur næst miðju bátsins.
  • Mörgum finnst gott að vera í kulda, t.d.að vera úti á dekki og láta vindinn leika um sig.
  • Matarlykt fer illa í þá sem hætt er við sjóveiki og einnig pústið frá bátnum.

Þungun:

Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.